Búfræðingurinn - 01.01.1944, Side 122
120
B Ú FRÆÐINGU R I N N
Norðurlands verið gerð tilraun með ínismunandi liirðingu ú
kartöflugörðum. Því miður varð árangur tilraunarinnar hæp-
inn árið 1942, vegna þess að mistök urðu í setningu kartaí'I-
anna og arfinn var í flekkjum í garði þeim, sem lilraunin var
gerð í. Siðastliðið sumar var tilraunin svo endurtekin og virt-
ist þá takast misfellulaust, að þvi fráskildu, að uppskeran
varð mjög rýr vegna ótíðar. Það hnekkir þó á engan hátt
niðurstöðum tilraunarinnar, sem eru mjög athyglisverðar, og
Jntr sem samræmið i tilrauninni er gott og endurtekningar
margar (4X3), þá ætti að vera leyfilegt að draga ályktanir
af henni, þótt aðeins sé um eitt ár að ræða. Þann varnagla vil
eg þó slá, að vaxtarmunur liðanna getur vafalaust orðið nokk-
uð mismunandi eftir árferði.
Garðurinn, ]>ar sem tilraunin var gerð, er fárra ára, heldur
ófrjór moldarjarðvegur, fremur valllendur. Kartöflurnar voru
settar 31. maí. Notaðar voru rauðar íslenzkar karlöflur.
Illgresiseyðingunni var hagað þannig:
A. Vorhirðing, framkvæmd frá Jiví, er kartöflurnar eru
settar, þar lil er þær koma upp. Hún skiptist þannig:
1) Engin eyðing illgresis.
2) Dreift 200 kg af tröllamjöli í ha þ. 10. júní.
3) Herfað tvisvar með illgresisherfi og hesti, þ. 16. og 22.
júní.
4) Herfað tvisvar með handherfi, J). 16. og 22. júní.
B. Sumarhirðing, eftir að kartöflurnar eru komar upp:
1) Hreykt ]>. 30. júlí.
2) Hreinsað einu sinni, ]). 2. júlí, og hreykt ]). 30. júlí.
3) Hreinsað tvisvar, þ. 2. og 19. júlí, hreykt 30. júlí.
4) Hreinsað tvisvar, ]>. 2. og 19. júlí, — ekki hreykt.
Meðfylgjandi tafla sýnir árangurinn af tilrauninni síðastl.
suinar. Uppskeran er umreiknuð i tunnur (100 kg) af ha,
en hlutfallstölurnar miðaðar við, að uppskera þeirra liða, sem
enga ýorhirðingu fengu, sé sett sem 100 í öllum tilfellum.
Það skal tekið fram, að við herfinguna var notað „Kors-
mos“ illgresisherfi, sem er með meitillaga tindum og um 2
metrar á breidd Handherfið fékk ég fyrir 2 árum hjá Sam
handi islenzkra samvinnufélaga í Rvík. Það er eins konav
hrífa um 1 m á breidd, sem selt er á venjulegan fjölyrkja.
Tindarnir, sem eru úr sívölum stálvír, eru langir, afturliggj-
andi og beygðir niður í oddinn. Þegar fjölyrkjanum er ekið