Búfræðingurinn - 01.01.1944, Síða 124
122
B Ú PRÆÐINGURINN
öflurnar, þótt það eyði arfanum ágætlega. Var greinilegur
sjónarmunur á því, hve grasið var lægra og vanþroskaðra á
tröllamjölsreitunum en á þeim herfuðu, einkum frarnan af
sumri.
Sá mikli árangur, er hreykingin virðist hafa, er vafalaust ár-
ferðisfyrirhrigði. Sumarið var kalt og rakt, og var áberandi,
að kartöflur spruttu bezt í þurrum jarðvegi. Hreykingin stuðl-
ar að því, að gróðrarmold garðanna þorni, því að rásirnar
Iciða yfirborðsvatn burtu og hreykingin eykur yfirborð garð-
anna og uppgufunina. í sæmilegu árferði, geri ég ráð fyrir,
að hreykingin hafi miklu minni áhrif, en hún er engu að síð-
ur réttmæt, því að hún er tiltölulega góð og l'ljótleg illgresis-
eyðing á þeim tíma, sem annarri illgresiseyðingu verður varla
við komið, styður grösin og ver kartöflurnar skemnidum af
sól og frosti og lóttir upptökuna.
Af framanrituðu má draga eftirfarandi ályktanir:
1) Góð illgresiseyðing i öllum vel mijldnum görðum er uð
herfa garðanu tvisvar, i þurru veðri, úður en kartöflurnar
koma upp að marki. Til þess má nota hestherfi (illgresis-
herfi), handherfi, sem fest er á fjölyrkja, eða garðhrífu
með breiðum meitillaga lindum. Hreinsa skal garðana
einu sinni (að minnsta kosti), eftir að kartöflurnar
eru komnar upp, og hreykja, þegar grasið er 20-—25 cm
hátt. Þegar hreykt er, þarf að gada þess, að hryggurinn
lokist vel að ofan.
2) Tröllamjöl eyðir arfanum prýðilega, en virðist annars
ekki hafa heppileg áhrif á vöxt kartaflannu. Þó getur
verið réttmætt að nota það í illa myldnum görðum, þar
sem herfing ber ekki fullan árangur, enn fremur í lauga-
görðum, þar sein sífelldur raki og gufa er, og sé um það
að velja að nota tröllamjöl eða vanhirða garðana er sjálf-
sagt að taka fyrri kostinn. Engin þörl' er að nota meira
en 200 kg í ha af tröllamjölinu. Áríðandi er að dreifa því
sem jafnast, eftir úrfelli eða dögg, undir þurrk og áður
en kartöflurnar koma upp.
Et til vill leiða l'rekari tilraunir í ljós ný sannindi viðvíkj-
andi notlcun tröllamjöls við eyðingu arfa í kartöflugörðum,
en þeirra verður enn að bíða um sturid. En eins og sakir
standa, vil ég hvetja menn almcnnt lil að nota fremur ill-
gresisherfingu i kartöflugörðum en tröllamjöl.