Búfræðingurinn - 01.01.1944, Page 128
12(i
BU FRÆÐINGURINN
í fyrsta lagi er um ]>að að ræða að flytja inn i landið ný,
betri, ræktuð og margra ára kgnbætt búfjárkgn.
í öðru lagi er sú leið að styðjast eingöngu við liinn innlenda
stofn og reyna að kynbæla hann með ýmsum aðferðum. Enn
fremur kemur mjög til greina að nota báðar þessar aðferðiv
samtímis.
Ef flutt er inn í landið nýtt búfjárkyn lil kynbóta, má fara
að á íleiri vegu:
1) Flytja má inn einhvern ákveðinn fjölda af karldýrum
viðkomandi dýrategundar og blanda með þeim í eill skipti
fyrir öll.
2) Halda má bæði hinum erlenda og innlenda stofni
lireinum í landinu og viðhafa einblendingsrækt.
3) Blanda má stöðugt innlenda stofninn með hreinkynja
Icarldýrum af hinum erlenda, sem þá endar óbeinlínis með
útrýmingu á þeim innlenda og hreinrælctim á hinum.
V. Innflutningur búfjár.
Meðal annars vegna þess, að hjá ýmsum mönnum hér á
landi ríkir alveg sérstök skoðun og jafvel alger fordæming á
innflutningi búfjár, vil ég' fara nokkrum orðum um flutning
búfjár almennt á milli landa. — Ýmsir á landi hér álíta, að
innflutningur kvikfénaðar hingað lil lands geti aldrei verið
nema til ills eins, muni aldrei geta gert gagn, alltaf ógagn.
Þessi skoðun manna hér mun að mestu eða öllu leyli stafa
af þeim óhöppum, sem við höfUm orðið fyrir í sambandi við
flutning fjárkláða hingað til lands með sauðfé og mæðiveiki
og garnaveiki, sem flestar líkur benda til, að hafi l'Iutzt hing-
að með Karakúlfénu. Út í það atriði sltal ég ekki fara nánar
að sinni, en drepa nú á nolckrar staðreyndir frá öðrum lönd-
um, þar sem innflutningur húfjár hefur gert landhúnaði
þeirra landa ómetanlegt gagn.
Danmörk. Á 19. öldinni var niikill áhugi meðal danskra hamda
á þvi að kynbæta búfé sitt. Ein aðalleiðin, sein þá var farin i l)an-
mörku, var að flytja dýr til kynbóta frá öðrum löndum. Þessi inn-
flutningur var um eitt skeið framkvæmdur í allstórum stíl, einkan-
Iega á hrossum og svinum, enda hefur hann haft mesta þýðingu
fyrir hrossa- og svinarækt Dana.
Á fyrri hluta 19. aldarinnar fluttu l)anir ekki aðeins inn svín
lil kynbóta frá Þýzkalandi og Englandi, heldur einnig frá Spáni,