Búfræðingurinn - 01.01.1944, Qupperneq 144
142
BÚFRÆÐINGURI N N
slrompar. Garðar eru steyptir. 1 öðrum þeirra er haðþró. Hús-
in eru mjög rúmgóð, og mundi ég ekki kjósa aðra húsagerð
fremur. Þau eru mjög loftgóð, og féð verður frjálslegt í þeim.
Kuldinn virðist ekkert gera því til.“
Sölvi sendi mér daglegar hitamælingar, gerðar kl. 8 að
morgni, veturinn 1933—1934, bæði inni í húsinu og úti.
Lægstur hiti úti var á tímabilinu 19. nóv. til 7. maí -4- 13 stig,
én inni -h5 stig, en mestur hiti r'iti 10 stig og inni 11 stig.
Meðalhiti var úti -í- 0,4 stig, inni -j- 3,0 stig. Áð meðnltali var
jwí um 3,4 sti(j heitarn inrti (mest 10, minnst -r-1, þ. e. heitara
úti).
Guðbergur Daviðsson að Höfða í Dýrafirði hefur góðfús-
lega sent mér eftirfarandi umsögn um járnhúsin þar:
„Fjárhúsið er 10 m langt. og 14 m breitt. Vegghæð er 3,5
m, en rishæð 2,0 m. Undir húsinu er steyptur áhurðarkjallari,
1,2 m á dýpt, og grindur á tréslám yfir. Þakið er bogadregið,
og eru járnplöturnar skrúfaðar saman íog á langböndin) með
galvaniseruðum skrúfnöglum, sömuleiðis bárujárnið utan um
grindina á veggjum hússins. Bárujárnsklæðningin utan á hús-
inu er þegar þyrjuð að ryðga út frá járnstoðunum, og eins eru
víða komin göt á járnið niður við steininn, en steinveggir
kjallarans eru steyptir upp fyrir neðri brún járnveggjanna.
Til þess að koma í veg fyrir innfenni tróð ég tuskum undir
þakbrúnina að innan, þár sem þak og veggbrún mætist. Þakið
ei víða orðið gegnryðgað og götótt út frá þessu tróði, og er
þó þvkkt járn i því, nr. 22. Styrktarjárnin eru ógalvaniseruð,
en ryðvarnarmáluð, og út frá þeiin ryðgar bárujárnið. Húsið
liefur ekki verið málað nema tjargað að innan allt í kring
eins liátt og kindur ná. Á hlöðunni, sem er af sömu gerð,
sjást engar skemmdir enn þá. Ekki virðist fé í þessu húsi,
þótt það sé kalt, þurfa meira fóður eða alast verr upp á nokk-
urn hátt en fé í hlýrri húsum. Húsið hélar injög lílið að inn-
an, vegna þess hve gisið það er, og féð er alltaf þurrt á lagð-
inn. Innfenni er nokkurt, og er þó hægviðri í aðalsnjóátt.“
Guðmundur Gíslason á Höfða skrifar lítið eitt um þessi hús
í 4. árg. Búfræðingsins. Telur liann þar, að járnið í fjárhúsin
(yfir 160—170 fjár) og tilsvararidi lilöðu hafi kostað um
4000 kr., en annað efni og vinna um 6000 kr. Hann segir enn
fremur, að hiti sé venjulega 4—6 stigum meiri í fjárhúsunum
en úti. í bréfi til mín nýlega segir Guðmundur: