Búfræðingurinn - 01.01.1944, Síða 153
Moldarspírun kartaflna.
í Búfræðingnum, 9. árg., er nokkuð skýrt frá reynslu um moldar-
spírun á kartöflum. Er þar mælt með þeirri aðfcrð og sýnt fram á,
að með henni megi fá kartöflur fullvaxnar miklu fyrr en við venju-
lega spirun. Þeir, sem hafa ekki gróðurhús eða vermireiti, geta
látið kartöflurnar spíra i smákössum. Gott er að blanda moldina
með sandi og hrossataði. í Garðyrkjuritið 1943 skrifar Klemenz
Kristjánsson tilraunastjóri á Sáinsstöðum um moldarspirun og
liirtir niðurstöður af tilraunum sinum i þvi efni. Skulu niðurstöð-
ur þessar teknar hér upp til frekari áréttingar, því að ég tel, að
það ætti að vera fastur liður i garðræktinni hér á landi að láta
nokkuð af kartöflUm spira í mold (frá nokkrum tugum upp i nokk-
ur hundruð kartöflur á heimili) lil þess að fá uppskeru fyrr á
sumrin. Þetta er ákaflega vandalaust verk. Bilið á milli kartafln-
anna má vera 5 cm og moldarlag ofan á þeim 2—3 cm. Eftir 3—4
vikur eru komnar (>- 10 cm háir stönglar og blöð, og eru þá plönt-
urnar gróðursettar úti í garðinum nieð venjulegu millibili. Skal þá
Játa fylgja eins niikið með af mold og' hægt er.
Hér fara á eftir tilraunaniðurstöðurnar frá Sáinsstöðum:
Venjuleg spirun Moldarspirun Sett niSur Tekið upp
1939 ... . 229,8 tn. 284,3 tn. 5. mai 3. ágúst
1940 .. 109,5 — 183,4 — 9. — 30. júlí
1941 ... 90,6 — 118,3 — 23. 14. ágúst
Meðaltal 163,3 tn. 195,3 tn.
Uppskerutölurnar eru miðaðar við ha. Þær sýna, að moldar-
spinm gefur aff me.ffaltáli 32 tunniun meira en venjuleg spírun, og
er þá skorið upp seinast í júli eða fyrra hluta ágústmánaðar. Auk
þessa eru moldarspíraðar kartöflur þurrcfnisaiiffiigri og í þeim
minna af smœlki. Moldarspirunin hefur þvi meiri hagnað í för með
sér en uppskerutölurnar sjálfar bera með sér.
Ef miðað er við Suðurland, mun ofl vera mátuicgt að setja
kartöflur til spírunar í moldina upp úr 20. april. Mun þá vera liægt
að setja þær út í garðinn um 20. inaí eða á líkum tima og oft er
sett niður í garða almcnnt. Kassarnir með moldinni og kartöflunum
þurfa að vera við sæmilega góðan hita, meðan spírun og vöxtur fer
fram. Ekki er fengin reynsla fyrir þvi, livert hitastig er hentugast.