Búfræðingurinn - 01.01.1944, Page 158
Heysleðar Kjartans í Bæjum.
Kjartan Halldórsson að Bæjum á Snæfjallaströnd hefur
sniíðað heysleða af nokkuð sérstakri gerð og notar þá á frum-
legan hátt. Tel ég hvort tveggja þess virði, að því sé komið á
framfæri. Fer hér á eflir lýsing á ]>essu og leilvningar:
Kjartan segir: „Eftir að ég hafði séð sleða Páls á Steindórsstöð-
um í Reykholtsdal árið 1936 og lesið 11111 hann í 3. árg. Búfræðings-
ins sama ár, vaknaði hjá mér áhugi á aðferð Páls með að koma
lieyinu i hlöður á fljótan og hagkvæinan hátt. Eg bjó mér því til
sleða árið eftir, sem er að visu nokkuð frábrugðinn sieða Páls, og
skal honum lýst.
Sleðinn er 2,45 m að lengd og 1,30 m að breidd. Á honum eru 1
þverslár, og eru þær styrktar með vinkilheygðu járni á tvo vegu.
Járnvinklar eru 8, og eru þeir boltaðir qpp um þverslána og i gegn-
um kjálkana. Járndrög eru undir sleðanum. Á þau eru að ofan (frá
jörðu) fest járn, sem eru beygð þannig. að þau mynda 2 cm víð göt
við dragið.
Undir sleðanum eru tveir trésivalningar um 31 cm að þvermáli.
Þá er hægt að taka undan, þegar vill, með þvi að skrúfa út boltana.
sem merktir eru S á teikningunni. Boltarnir eru %" að þvermáli
og 16" langir og „snittað“ af þeim allt jiað, sem gengur inn í sivaln-
inginn. Róin af hvorum bölta er fest í miðjan endaflöt. sívalnings-
ins. Skrúfast Jioltinn inn og út í henni.
Fyrir sleðanum er tveggja hesta stöng, sem fest er við járnið á
fremstu slánni. Stöngin getur gengið upp og niður og til hliðar,