Búfræðingurinn - 01.01.1944, Blaðsíða 167
B U F R Æ Ð I N G U HINN
1(55
var boln skúffunnar úr l'löt-
um járnteinuni eða stálvír,
sem festurvar aftan í greiðuna
íiieð nokkru millibili.1) Seinna
fóru menn að nota sléttan vír
eða snæri (l. d. 4 punda
línu). I>að hafa ekki verið
framkvæmdar neinar saman-
burðartilraunir með þessar
gerðir af heyskúffum. lig lief
séð þær allar í notkun og tel, að líkur séu til, að snærisskúff-
nn sé bezt, þegar allt kemur til alls. Skal henni því lýst hér:
Al'tan í sláttuvélargreiðuna er festur mjór járnteinn. Má
h.ann hvorki ná niður fyrir brún hennar, því að þá vill snærið
slitna, né upp fyrir, því að þá er hann til hindrunar fyrir því,
að grasið komist aftur af greiðunni. Á teininn er snærið fest
með nál. þuinmlungs millihili. Er það temprað með mjóum
rörbút af þeirri lengd. Er l. d. gotl að saga niður raflagningar-
rör og setja bútana upp á járnteininn á milli snærislínanna.
I>ann endann á hverjum snærisspotta, sem veit aftur frá
greiðunni þarf að vefja með mjóum vír. Lengd snæranna fer
eftir því, hve skúffan á að taka mikið, 1 m eða þar vfir.
Aftan við snærisendana og lil hliðar er rammi tir tré eða
járni. Hann er að framan festur við greiðuna og hefur sömu
breidd og hún er löng, en að aftan er hann lílið eitl mjórri,
svo að grasið falli ekki alveg að óslægjunni. I.engd rammans
er sú sama og lengd snæranna. Ramminn er á hjörum annað-
hvort fremst við greiðuna eða liðamót eru á honum miðjum.
í fyrra tilfellinu er hægt að lyfta honum öllum upp, en í hinu
síðara aðeins aftari hluta hans. Er auðvelt að gera það úr
sæti sláttuvélarmannsins með ]>v í að festa aftast í skúl'funa
stöng eða snæri.
Þegar grasið l'ellur aftur al' greiðu sláttuvélarinnar, leggst
það á snærin, en verður um leið fyrir mótstöðu, sem gras-
slubbarnir veita, og safnasl þvi smám saman aftur að ramm-
1) Tveir bændur, þeir Sigurgeir Sigfússon á Eyrarlandi og Sigfús Hall-
grimsson Ytra-Hóli, gerðu slika Jicyskúffu fyrstir manna, en hug-
myndina hafði Jón Rögnvaldsson garðyrkjumaður komið með frá
Amcriku. Siðar smiðaði Steindór Jóhannesson, járnsiniður á Akureyri.
þessar skúffur, i fyrstu fyrir tilstilli l'ramfarafélags Öngulstaðahrepps.