Búfræðingurinn - 01.01.1944, Side 193
B Ú F B Æ í> I N G U R I X N
191
deildar, Hvöt, voru haldnir 16 fundir (15). Til máls tóku allir yngri
deildungar, 24 að tölu, (23), þar af 23 á 5 funduin eða fleiri (14).
Af 55 nemendum skólans hafa alls tekið þátt i umræðum á fund-
um málfundafélaganna 44 nemendur eða 80%, þar af 32 á 5 fund-
um eða fleiri. Alls voru haldnir 35 fundir i málfundafélögum skól-
ans. Þessar tölur sýna, að þátttaka nenienda í fundahöldunum
hefur ekki verið góð í vetur og lakari en oft undanfarið. Allir
kennarar skólans og nokkrir starfsmenn hans hafa tekið nokkurn
þátt í félagslífinu. Svigatölurnar eru frá 1941—42.
Vin- ot/ tóbaksbindindisfélögin voru s. ]. vetur sameinuð í eitt fé-
Iag. Þá voru meðlimir þess 51, þar af 43 nemendur, en í vetur eru
meðlimir aðeins 22. Engir fnlltrúar voru i vetur sendir á þing
Sambands hindindisfélaga í skólum, og þaðan komu engir sendi-
menn. Taflfélagið hefur starfað allmikið i vetur. í því voru alls
58 menn, þar af 47 nemendur. Taflfélagið i Borgarnesi bauð skól-
anuin til taflkeppni 7. febrúar í vetur. Var teflt á 12 horðum, og
unnu Borgnesingar með 6%:5%. Keppnin var allhörð og í því
mikill sigur fólginn fyrir Hvanncyringa, að þeir unnu á tveiiuur
efstu borðunum. Sigurvegararnir voru þeir Þorkell Þórðarson og
Hans Joensen. Kappskák var hað innan skólans i vetur. Flesta
vinninga hilfði Þorkell Þórðarson. Formaður taflfélagsins var Þor-
kell Þórðarson. Blaðafélagið hefur starfað líkt og undanfarið. Það
lcaupir mörg helztu dagblöð og timarit landsins. Það'fær starfsfé
silt úr Söfnunarsjóði. Formaður Blaðafélagsins er Haukur Jörunds-
son kennari, og er hann jafnframt hókavörður skólans. Af bóka-
safni skólans voru veturinn 1943—1944 lánaðar (Í88 bæður, þar af
48% skáldrit, 31% tímarit og 21% aðrar hækur.
íþróttir og skemmtanir. íþróttafélag skólans hefur starfað likt
og undanfarið. Formaður þess er nú Hjálmar Tómasson leikfimi-
kennari. Veturinn 1943—1944 voru keyptir íþróttabúningar 11 að
tölu. Gerð þeirra er eftirfarandi, og liefur hún verið staðfest af
íþróttasambandi íslands: rauð peysa með hvítri skárönd yfir
brjóstið, hvitar buxur með rauðum bryddingum, rauðir sokkar.
í búnLngnum er Hvanneyrarmerkið, skjöldur ineð plóg, en fyrir
ofan ]>að eru stafirnir í. F. H. (íþróttafélag Hvanneyringa).
Félagið á 12 pör af skautum, en skiðin voru seld í liaust,
sem leið. Umferðakennarar íþróttasambands íslands, þeir Axel
Andrésson og Kjartan Bergmann, voru hér 2—3 vikur hvor fyrir
jól 1943 og kenndu skólapiltum knattspyrnu og íslenzka glimu. Að
afloknu glímunámskeiðinu fór fram keppni um glimubikar Hvann-
eyrarskólans. Varð Þorkell Þórðarson lilutskarpastur.
Skemmtanir fyrir lieimafólk liafa vanalega verið lialdnar uin
aðra hverja lielgi í vetur. Aðalskemmtun var haldin 4. marz. Sýnd-
ur var sjónleikurinn Vekjaraklukkan, nemendur sungu undir stjórn