Búfræðingurinn - 01.01.1944, Page 194
102
B Ú F R Æ Ð I N G U B I N N
Halldúrs Sigurðssonar, og Garðar Halldórsson flutti ræSu. Reyk-
holtsboð var haft 24. marz. Iíeppt var í knattspyrnu, og unini
Hvanneyringar með 8:4. Taflkeppni unnu þeir einnig með 3:2.
Hvanneyringar sýndu sjónleikinn Yekjaralclukkuna, kvæði fluttu
Halldór Bjarnason, Jón Kristjánsson og Árni Arason, en ræðu
Halldúr Sigurðsson. Kórar skólanna skemmtu með söng, og dansað
var fram eftir nóttu. Skemmtu menn sér hið hczta.
Verknámsferð. Verknámsferðin 1943 var farin til Nórðurlands.
Stóð hún í 3 daga. Yiðkomustaðir voru að mestu hinir sömu og
áður og ofl "hefur verið lýst í Búfræðingnum. Þó var, því miður.
ekki hægl að koma við á Hólum vegna veikinda þar. I'ararstjóri
var Haukur Jörundsson kennari.
Góffir gestir. Pétur Sigurðsson erindreki kom hingað í vetur
sem endra nær og flutti erindi. Er hann Hvanneyringum orðinn
að góðu kunnur. Aðrir aðkomumenn hafa ekki flutt erindi í vetur.
Ungmeyjum úr Borgarnesi og af nágrannabæjum hefur verið hoðið
nokkrum sinnum á heimaskemmtanir i vetur eins og áður. Er
tryggð þeirra æ hin sama, þótt nýir og nýir menn njóti hennar.
Ymistegt. Tvö undanfarin vor og sumur hafa verið haldin hér
tamninganúmskeið fyrir dráttarhesta, eitt að vorinu og annað að
sumrinu. Á hvert námskeið hafa vcrið teknir 10 hestar. Hcfur
Búnaðarsamband Borgarfjarðar styrkt þetta að nokkru.
Dagana 24. og.25. júní 1943 var lialdið hér 14. sambandsþing
U.M.F.Í. Sóttu það alls 57 fulltrúar. Fjórffa landsmót U.M.F.Í. var
svo háð hér dagana 20. og 27. júní. Tóku þátt i því 150 íþrótta-
menn frá 11 héraðssamböndum. íþróttirnar fóru fram á Fitinni
nema sundið, sem þreytt var í nýhyggðri laug við Tungutún. Ung-
menna- og íþróttasámhand Austurlands vann mótið með 45 stigum.
Tjaldborg mikilli var komið upp austan við heimreiðina, og var
þar flest á ananð hundrað tjalda. Sunnudaginn 27. júni voru flestir
gestir, líklcga á fjórða þúsund manns. Mótið fór ágætlega fram.