Búfræðingurinn - 01.01.1944, Blaðsíða 211
og þjónustu hinn síðari vetur gegn vinnu sinni í verknáminu
og að auki 100 kr., eí' þeir Ijúka námi og prófi.
Með núverandi verðlagi (1044) má gera ráð fyrir, að nauð-
synlegur dvalarkostnaður verði 1200—1500 krónur, þ. e. fyrri
veturinn, þar í talið i'æði, þjónusta og ritföng.
Nemendur leggi sér lil og liafi með sér íveruföt og sængur-
föt til skipta, sem þurfn cið vcra vel mcrkt og i góðu standi.
Einnig leggi þeir til bætur og saumgarn í föt sin, þeir hafi með
sér handklæði, handsápu, skóáburð, skó-, fata- og tannbursta,
— enn fremur skauta, skíði og reiðhjól, ef þeir eiga. Kennslu-
hækur, sem notaðar eru í skólanum ásamt ritföngum og öðru,
sem að kennslunni lýtur, f'æst hér á staðnum.
Öll ncyzla áfengis og tóbaks cr ncmendum bönnuð hcr á
slaðnum. Ég vil þvi vinsamlega, en mjög eindrcgið, benda um-
sækjendum á, að þeir, sem ekki eru fullkomlega ákveðnir í að
halda hér slikt bindindi eða treysta sér ekki til þess, komi þá
ekki hingað. Ég mun skoða það sem drengskaparloforð nem-
enda um að halda þetta heit, að þeir koma hingað, cr þeir
hafa fengið þessar upplýsingar áður.
Skólinn vill vera nemendum sem heimili þeirra, meðan þeir
dveljast hér, en uin leið gera þá sjálfsögðu kröfu til þeirra, að
þeir semji sig að þcim siðum og þeim reglum, sem hér rikja á
hverjum tíma. Árangur skólaverunnar mun að verulegu leyli
fara cflir vilja nemendanna til samstarfs við kennara skólans.
Vegna mikillar aðsóknar eru umsækjendur beðnir að til-
kynna samstundis forföll um komu i skólann, svo að hægt sé
að veita öðrum.
Með vinseind og von um golt sainstarf á Hvanneyri.
Rnnólfur Sveinsson, skólastjóri.