Ritmennt - 01.01.2003, Síða 18

Ritmennt - 01.01.2003, Síða 18
EINAR H. GUÐMUNDSSON RITMENNT Det National historiske Museum. Carl Ferdinand Degen, kenn- ari Björns í stæröfræði. Danmarks tekniske Museum. Hans Christian 0rsted( kenn- ari Björns í eðlisfræði. Björn lauk öðru lærdómsprófi 1818 og hóf að því loknu nám í æðri stærðfræði og landmælingum. Árið 1819 glímdi hann enn á ný við verðlaunaverkefni háskólans í stærðfræði, sem fjallaði um ákveðið vandamál í rúmfræði. Lausn hans þótti frumleg og hlaut Björn því gullverðlaun í annað sinn í febrúar 1820.10 Því miður er margt á huldu um frekara nám Björns í Kaup- mannahöfn. Þó er vitað að hann lærði landmælingar hjá Schu- macher og vann hjá honum við þríhyrningamælingar á Holtseta- landi á árunum 1820 og 1821.11 Hann hefur væntanlega einnig stundað frekara nám í stærðfræði undir handleiðslu Degens. Að sögn Ottós J. Björnssonar er vitað, að veturinn 1819-20 las hann meðal annars verk raunvísindamannanna L. Eulers, J.L. Lagranges og A.G. Kástners [74]. Víst er, að Björn átti bælcur eftir þessa þrjá heiðursmenn, og voru þær seldar á uppboði að honum látnum. Hið sama gildir um bækur um stjörnufræði og landmælingar eft- ir T. Bugge, sem Björn hefur eflaust lesið á námsárum sínum í Höfn.12 una í Höfn til 1829 var Erasmus Georg Fog Thune (1785-1829), prófessor í stærðfræði og forstöðumaður stjörnuturnsins 1 Höfn. Hann hafði einnig lært hjá Gauss í Göttingen. Um Schumacher má lesa hjá [2, 3, 5, 69, 71, 90] og Thune hjá [4, 78, 90). Grein Schumachers „Almyrkvi á sólu í Vínarborg síð- asta dag júlímánaðar 1842" birtist í þýðingu Jónasar Hallgrímssonar (1807- 1845) í Fjölni, 6. ár, 1843, bls. 55-58. Hans Christian 0rsted (1777-1851) var prófessor í eðlisfræði við Hafnarháskóla 1806-51. Hann er þekktastur fyrir að hafa uppgötvað seguláhrif rafstraums. Uppgötvunin var gerð vorið 1820 í Kaupmannahöfn, á námsárum Björns Gunnlaugssonar. Um 0rsted má t.d. lesa hjá [44]. 10 Sjá Dansk Litteratur-Tidende for Aaret 1819, bls. 79 og Dansk Litteratur- Tidende for Aaret 1820, bls. 79. Uppskrift af sameiginlegri umsögn Degens, Schumachers og Thunes um ritgerðina er varðveitt sem handrit í Lbs 384 fol. Næsti íslenski verðlaunahafinn 1 stærðfræði var Ólafur Dan Daníelsson (1877-1957), sem hlaut gullverðlaun 1901. Hálfri öld síðar, 1951, komu þau svo í hlut Sigurðar Helgasonar (f. 1927). 11 Sjá [76] og einnig bréf Björns til Bjarna Þorsteinssonar síðar amtmanns (1781-1876) í Lbs 437a fol. 12 Sjá Uppboðsbók 1875-1880, Reykjavík XXIV, no. 14 á Þjóðskjalasafni fs- lands. Svisslendingurinn Leonhard Euler (1707-83) og Frakkinn Joseph Lou- is Lagrange (1736-1813) eru báðir heimsþelcktir raunvísindamenn. Abraham Gotthelf Kástner (1719-1800) var prófessor í stærðfræði í Göttingen. Thomas Bugge (1740-1815) var forveri Schumachers sem prófessor í stjörnufræði við Hafnarháskóla á árunum 1777-1815. Hann var einnig prófessor í stærðfræði. Um Bugge má t.d. lesa hjá [2, 5, 69, 71, 90]. í handritadeild Landsbókasafns eru varðveitt nokkur handrit Björns frá háskólaárunum með útreikningum hans og stærðfræðilegum úrlausnum. 14
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168

x

Ritmennt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritmennt
https://timarit.is/publication/859

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.