Ritmennt - 01.01.2003, Blaðsíða 139
RITMENNT
TVÖ BRÉF TIL MÓÐUR
Lund þar ogþá var mér boðið að borða þar til miðdegis og bauð
frú Lund mér þá strax út til sín um jólin. Eg fór með henni enn
afþví mér leiddist þar, þá fór eg inn til Hafnar aptur rétt fyrir
nyár; eg skal skrifa þér þettað greinilegar seirna. Enn það besta
hús sem mér finnst eg hafa komið í hérna það er til major
Meza's. Grímur las með honum islenzku og bauð hann honurn
eirn sunnudag að taka einhvörn úngan Islending með sér til að
borða þar. Grímur tók mig, og síðan hefur major Meza's boðið
mér að lcoma á hvörju fimtudagskvöldi í „Soireer" sem hann
heldur. Hann er ógnarlega franskur og hefur með konu sinni
lengi verið í París, stundum á kvöldin gengur þar alt á frönsku.
Kona hanns er ógnarlega mentuð, hún er dönsk, enn hann sjálf-
ur af spönskum ættum. Þau hafa í París þekkt G. Sivertsen enn
í Höfn B. sáluga Sivertsen og sakna þau hanns mjög. Þau eiga
ekkért barn. A fimmtudagskvöldonum koma þar tvær fröltener
Benzon frændstúlkur frú Hoppe og hafa þær opt verið að spurja
eptir henni. Nú verð eg að fara að hætta því eg hefi ekki góðan
tíma því eg á að fara upp til „examen philologicum" um
páskana. Arfurinn eptir Vigfús verða hérum bil 250 dalir og er ei
búið að borga það út enn. Enn þú gétur ei fengið þinn hluta
fyrenn í sumar því skiftarétturinn vildi ekki taka fullmagt
Oddgeirs gilda afþví hún var óuppáteiknuð af notar(io) publ(ico)
eg sendi hana því hérmeð tilað fá hana uppáteiknaða og líka vilja
þeir að þú sendir ef þér er mögulegt dauðaattest föður míns
sál(uga) enn þettað væri best að fá með fyrstu skipum. Oddur
sendi mér anvisning uppá 600 dali uppá Guðmann og keipti
Oddgeir „creditkassaobligation" uppá 500 dali fyrir 523 dali
hinum 77 dölonum tók eg við eptir því sem þú hafðir sagt. Nú
koma kanské hin 540 með póstskipi og fyrir það verður keipt
önnur obligation. Um nyár fékk eg 10 dala rentu af þessarri
fyrstu obligation og fæ aðra 10 í sumar. Afþví eg þurfti á
peningum að halda var Hemmert svo góður að lána mér 200 dali
uppá arfinn sem þú hafðir sagt eg mætti fá þegar hann fengist,
enn eg gat ekki beðið eptir honum þángaðtil í sumar. Heilsaðu
Margréti, eg skrifa henni seirna, elcki er eg enn búinn að láta
mála mig, það kostar svo mikið, enn eg ætla þó að reyna það
lcannské seirna í vor, því nú má eg um ekkért hugsa fyrir exam-
ini. Þú verður að fyrirgéfa þó eg kanslte elclci géti skrifað fyrenn
eptir examen, enn þá slcrifa eg alt greinilega um útgiptir mínar
og annað. Eg bið að heilsa maddömunni G. Melsteð og öllum.
Síra Helga þori eg ekki að skrifa því eg á von á honum með póst-
135