Ritmennt - 01.01.2003, Blaðsíða 32
EINAR H. GUÐMUNDSSON
RITMENNT
Mikið hefur verið fjallað um náttúruguðfræði, markhyggju og
skipulagsrök í gegnum tíðina, bæði með og á móti. Þáttaskil
urðu árið 1779 með ritinu Dialogues Concerning Natural Reli-
gion eftir skoska heimspekinginn David Hume (1711-76), en í
því er meðal annars sýnt fram á haldleysi skipulagsraka. Tveim-
ur árum seinna hafnaði svo heimspekingurinn Immanuel Kant
(1724—1804) einnig skipulagsrökum í verki sínu Critik der
reinen Vernunft (Riga 1781 ).43
Neikvæð umfjöllun þeirra Humes og Kants virðist ekki hafa
haldið aftur af Birni Gunnlaugssyni við ritun Njólu. Hann var
reyndar í góðum félagsskap hvað það varðar, því margir fræði-
menn á fyrri hluta nítjándu aldar héldu áfram að nota skipulags-
rök í umræðum um guð og náttúru. Sem dæmi má nefna hin
svokölluðu Bridgewater-rit, flokk bóka um náttúruguðfræði eft-
ir þekkta breska raunvísindamenn, sem kom út á fjórða áratugn-
um. Jafnvel á seinni hluta aldarinnar má nefna til sögunnar
raunvísindamenn svo sem enska stjörnufræðinginn John Frede-
rich William Herschel (1792-1871) og skoslca eðlisfræðinginn
James Clerk Maxwell (1831-79), sem báðir áttu það til að grípa
til skipulagsraka í verkum sínum [31].
Hugmyndafræði Björns á einnig margt sameiginlegt með
vangaveltum, sem á seinni árum er farið að kalla sterku útgáf-
una af mannhorfi (e. anthropic principle). Þar er því haldið fram,
að alheimurinn hljóti nauðsynlega að hafa þá eiginleika, sem
leyfa lífi að myndast og þróast. Slíkar slcoðanir hafa eklci mikið
fylgi meðal fræðimanna nútímans, þótt ýmsir aðrir taki þeim
opnum örmum. Hins vegar er til veikari útgáfa af mannhorfi,
sem talsvert hefur verið til umræðu meðal vísindamanna og
heimspekinga á undanförnum árum. Þar er bent á, að við ættum
43 Stutt en hnitmiðað sögulegt yfirlit um þetta efni er að finna hjá [31]. Sjá einn-
ig ítarlegri umfjöllun hjá [9]. Bólc Humes kom út á íslensku árið 1972 undir
heitinu Samræður um trúarbrögðin. Enn er deilt um þetta efni, sem meðal
annars hefur blandast inn í baráttu kristinna bókstafstrúarmanna gegn þró-
unarkenningunni. Skemmst er að minnast skoðanakönnunar Gallups, sem
gerð var árið 2001 og sýndi að um 45% Bandaríkjamanna trúa því, að guð hafi
skapað heiminn fyrir minna en tíu þúsund árum. Yfirgnæfandi meirihluti
vísindamanna telur skipulagsrök lítils virði og sumir þeirra, t.d. líffræðingur-
inn Richard Dawkins og eðlisfræðingurinn Steven Weinberg, hafa gagnrýnt
þau harðlega í ræðu og riti. Lítill minnihluti, m.a. eðlisfræðingurinn John
Polkinghorne og vísindasagnfræðingurinn og stjarneðlisfræðingurinn Owen
Gingerich, taka hins vegar fullt mark á skipulagsrökum.
28