Ritmennt - 01.01.2003, Page 28

Ritmennt - 01.01.2003, Page 28
EINAR H. GUÐMUNDSSON RITMENNT ar á þessum tíma. Ýmis tímarit í raunvísindum voru einnig komin til sögunnar og helstu vísindamenn Norðurlanda birtu þar reglulega pistla um rannsóknarniðurstöður sínar.38 Það virðist því nolclcuð ljóst, að Björn stundaði elcki rannsókn- ir í stærðfræði eða stjörnufræði á sviðum, sem efst voru á baugi í útlöndum. Öll hans verk voru miðuð við íslenskar aðstæður og unnin fyrir land og þjóð. Hann naut mikillar virðingar hér á landi fyrir stærðfræðigáfur og fræðistörf og var að auki fyrirmynd ým- issa íslenskra samtímamanna, sem áhuga höfðu á stærðfræðileg- um lærdómslistum og stunduðu þær í frístundum. Hann mun og ávallt hafa verið reiðubúinn að aðstoða landa sína við slíka iðju og rökræða við þá um fræðin. Einn af nemendum hans frá Bessa- staðaárunum, séra Jón Einarsson Thorlacius (1816-72), gaf til dæmis út Stundatal eptir stjörnum og tungli árið 1855, og fjallaði Björn á jákvæðan hátt um verkið í stuttri blaðagrein [23a]. Hann skrifaðist á við Jón Bjarnason (um 1791-1861) bónda í Þórorms- tungu, sjálfmenntaðan stjörnufræðing, sem reiknað gat brautir himintungla og samið almanök sem jöfnuðust á við verk skóla- lærðra manna. Þetta staðfesti Björn í minningargrein um Jón, sem birtist í Þjóðólfi árið 1861. Af greininni má ráða, að þeir Jón og Björn hafi átt margt sameiginlegt og það virðist einnig hafa verið álit samtímamanna. Eftirfarandi ummæli Björns um Jón mætti því sennilega nota um hann sjálfan: ... þykist eg vita og jafnvel heyrt hafa, að siðferði hans og dagfar allt hafi verið samboðið hans stjörnufræði, því hún Uranía hans mun hafa dreg- ið huga hans frá öllu því hégómlega, auðvirðilega og fávísa jarðneska, og haldið honum í auðmýkt til hins stóra, hátignarfulla og eilífa.39 Hugmynd um alheimsáformið Að þríhyrningamælingunum undanskildum hefur meira verið fjallað um Njólu í rituðu máli en nokkurt annað verk Björns Gunnlaugssonar.40 Þótt þessi tvö þekktustu verk hans séu eins 38 Eitt af þessum tímaritum var Astronomische Nachrichten, sem H.C. Schu- macher, kennari Björns, hóf að gefa út árið 1821. t>að kemur enn út. 39 Sjá [23b]. 40 Njóla kom út þrisvar: Fyrst 1842, þá aukin og endurbætt 1853 og loks óbreytt frá annarri útgáfu 1884 (19). Tilvísanir í þessari ritgerð eru í þriðju útgáfuna, nema annað sé tekið fram. Orðið njóla er sótt í Alvíssmál og þýðir nótt. 24
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Ritmennt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritmennt
https://timarit.is/publication/859

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.