Ritmennt - 01.01.2003, Síða 54
EINAR H. GUÐMUNDSSON
RITMENNT
Guð spátsera í honum líka. En að þetta sé rangt; sjest af hinni Wolffisku
definition tímans: Tempus est series successivorum. Spatium est series
simultaneorum.82
Af minnisblöðum Björns má einnig sjá, að umfang rúmsins hef-
ur ekki verið honum síður hugleikið en tíminn og eilífðin. Eins
og fram kemur í Njólu taldi hann fullvíst, að hvorki rúm né tími
hefðu takmörk og af þeirri ástæðu virðist honum hafa verið sér-
lega uppsigað við fyrstu setningu (thesis) Kants í andstæðum (þ.
Antinomien) hans í Critik der reinen Vernunft. Þar eru færð rök
fyrir því, að alheimurinn eigi sér upphaf í tíma og sé takmark-
aður í rúmi. I andstæðu setningunni (antithesis) reynir Kant hins
vegar að sýna fram á, að alheimurinn sé ótakmarkaður, bæði í
tíma og rúmi.83 Björn hefur að sjálfsögðu ekkert við andstæðu
setninguna að athuga, en til er í handriti atlaga hans að sönnun
Kants á setningunni um takmarkaðan heim. Drögin eru í tveim-
ur köflum og í fyrri kaflanum „Um Kants Critik der reinen
Vernunft ... um stærð alheims" segir Björn meðal annars:
Það virðist mér vera galli á sönnun Kants fyrir Thesi í hans Antinomiu
um heimsins endanlegu eða óendanlegu stærð, að þegar hann er búinn
að setja (sem refutandum) að alheimur sé Infinitum, þá lætur hann
hann þó vera Quantum, hvers partar hljóti að teljast, og sú talning hljóti
að fullendast. En þetta er gagnstætt eiginleikum Infinite; það hvorki
verður talið né þarf að teljast, því það er gefið að það yfirgengur alla tölu
og alla stærð. Þegar Kant var búinn að ponera að hcimurinn væri Infini-
tum, átti hann að halda sig fast við eiginleilca Infiniti og refutera
hypothesin með því að sýna að þeir ekki hefðu stað hjá alheimi. Þar á
móti lcúgar hann þetta sitt Infinitum inn í eiginleika Finitorum, og
ályktar síðan að alheimur ekki geti verið Infinitum af því það vanti eig-
inleika Finitorum, [nefnilega] þá fullenduðu talningu.
Seinni kaflinn heitir „Thesis í Kants Antinomiu ... um upphaf
heimsins" og hefst á þessa leið:
Sönnunin fyrir Thesi sýnist mér verði að hafa galla, því að jeg get með
líkum hætti sannað að Æternitas ante (eða eilífðin á undan oss) hafi
82 Latnesku tilvitnunina mætti þýða sem „Tími er halarófa atburða. Rúm er röð
samtíma fyrirbæra". Hún er úr bók C. Wolffs, Cosmologia generalis (Almenn
heimsfræði; Frankfurt 1731). Bókin er m.a. athyglisverð vegna þess, að þar
kemur orðið cosmologia fyrir í fyrsta sinn.
83 Ágætis umfjöllun um þessar andstæður Kants er að finna hjá Grími Thom-
sen [46], bls. 81-83. í þessu sambandi má einnig minna á, að í „æskuverki"
sínu Allgemeine Naturgeschichte und Theorie des Himmels taldi Kant, að
rúmið væri takmarkalaust og tírninn endalaus. Hins vcgar hafi heimurinn átt
sér upphaf.
50