Ritmennt - 01.01.2003, Síða 72
EINAR H. GUÐMUNDSSON
RITMENNT
að engin auka-viðhöfn hafði verið fyrirbúin við útför þvílíks
manns." I frásögninni kemur einnig fram, að hin þekktu um-
mæli um „spckinginn með barnshjartað" eru komin frá séra
Helga Hálfdánarsyni prestaskólakennara (1826-94), sem jarð-
söng.113 í annarri minningargrein í ísafold segir Páll Melsteð
sagnfræðingur (1812-1910) meðal annars þetta um Björn:
Hann varði öllum sínum stundum í þjónustu vísindanna, hafinn yfir
andstreymi, stímabrak og smámuni daglegs lífs. Hann vissi tíðum ekk-
ert af því, er í kringum hann gjörðist, og þarf það eigi að undra, því að
hugur hans var þá annaðhvort í langferð út urn himingeiminn og í félagi
með Herschel, Arago og Struve, eða hann sökkti sjer ofan í djúp heim-
spekinnar og skyggndist þar um, er Leibniz, Kant og Fichte höfðu á und-
an farið. Ef nokkur má nefnast spekingur að viti af íslendingum á
seinni tímum, þá er það Björn Gunnlaugsson.114
Rúmlega hálfri öld eftir lát Björns orti Einar Benedilctsson til
hans kraftmikið lofkvæði, og var það birt í Hvömmum árið
1930. Það er viðeigandi að ljúlca þessari ritgerð um Björn Gunn-
laugsson með orðum þess manns, sem talinn er hafa orðið fyrir
hvað mestum áhrifum frá frumspekilegum vangaveltum hans115,
en annað erindið í kvæði Einars hljóðar svo:
Nóttin útræna nam hann í fóstur;
og nafn hans er frægt meðan stjarna vor skín.
Við fjúkandi mjallir, gadda og gjóstur
hans geð tók svip við jöklanna brýn.
Náttskáldið háa himnana brúar,
höfðingi vits og barn sinnar trúar.
Svo kleif hann hér tinda og tróð vor hrjóstur,
tröllstór að anda og vallarsýn.116
113 Þjóðólfur 8. apríl 1876, bls. 1-2. Minningargreinin er sennilega skrifuð af rit-
stjóra blaðsins, séra Matthlasi Jochumssyni. f lokin er birtur hluti af minn-
ingarljóði séra Matthíasar um Björn, en það má finna í heild í Ljóðmælum
hans, fyrra bindi, Reykjavík 1956, bls. 331-33.
114 ísafold 24. mars 1876, bls. 1-2. f [93] er brugðið upp svipmyndum úr ævi
Björns, einkum þó frá efri árum.
115 Sjá t.d. [63].
llóÞeir Aóalgeir Kristjánsson fyrrverandi skjalavörður, Bjarni Bragi Jónsson
hagfræðingur, Jón Ragnar Stefánsson stærðfræðingur, Leó Kristjánsson jarð-
eðlisfræðingur og Skúli Sigurðsson vísindasagnfræðingur fá sérstakar þakkir
fyrir yfirlestur og gagnlegar ábendingar um efnisatriði og málfar. Þá þakka ég
starfsmönnum handritadeildar og þjóðdeildar Landsbókasafns íslands - Há-
skólabókasafns fyrir frábæra þjónustu og mikilvæga aðstoð við leit að heim-
ildum. Hið sama á við um starfsmenn Þjóðskjalasafns.
68