Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1974, Page 78

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1974, Page 78
Tímarit Máls og menningar svo að tilbeiðslu á þeim og knéfalli yrði ekki við komið. Allar styttur og bílæti voru síðar brotin og fjarlægð úr kirkjuhúsum og það eitt skraut sem fann náð fyrir augum myndbrjótanna voru fornhelg tákn eins og krossar og óhlutlægar myndir, svipaðar þeim er prýddu moskur eða bænahús þeirrar trúar er á þessum tíma fór sigurför um heiminn, Islams. Er þar skemmst frá að segja, að þessi keisaralega tilskipun mæltist illa fyrir með flestum kirkjunnar mönnum og allri alþýðu manna, einkum í vestur- hluta ríkisins eins og á Italíu. Þegar hér var komið sögu, höfðu helgimyndir náð slíkri útbreiðslu og vinsældum innan kristinnar kirkju, að ýmsum vand- lætingasömum strangtrúarmönnum þótti jaðra við skurðgoðadýrkun eins og fyrr segir. I Móselögum eru ströng bönn við myndagerð og tilbeiðslu mynda og hefur mörgum kristnum manni að líkum orðið það torskýrt í hverju mynddýrkun 8. aldarinnar væri fráhrugðin þeirri skurðgoðadýrkun sem Biblían, bæði Gt. og Nt., bannar svo afdráttarlaust. Hafi Gyðingar, sem jafnan voru fjölmennir í stærstu borgum hins rómverska ríkis, verið lítilsmet- inn og marklaus lýður í trúarlegu tilliti, þá gátu valdhafarnir ekki skellt skolleyrum við þeirri gagnrýni, sem hinir múhameðsku sigurvegarar háru fram við kirkjuna, þá spillingu sem þar hafði búið um sig að þeirra dómi og fráhvarf frá hoðskap meistarans frá Nazaret, þeim boðskap er spámaður- inn frá Mekka var nú kominn til að hefja til vegs á ný og fullkomna. Enda var litið á íslam hinar fyrstu aldir af ýmsum oddvitum kirkjunnar sem kristna villukenningu á borð við nestoringa fremur en ný trúarbrögð. Það er því engin tilviljun að þeir keisarar 8. og 9. aldar, sem gengu fram fyrir skjöldu við að útrýma íkónum úr kirkjum ríkisins, voru allir frá Litlu-Asíu komnir og studdust við her úr austurhluta ríkisins. En einmitt þar voru sam- skipti nánust við bæði Gyðinga og þá er gengið höfðu hinni sigrandi nýju trú á liönd. Hver borgin féll af annarri í Sýrlandi, Palestínu og Egyptalandi fyrir hinum vígreifu stríðsmönnum íslams og reyndist þá verndarmáttur helgra íkóna ná skammt, þótt klerkar gengju með myndir af Maríu Guðs- móður, píslarvottum og dýrlingum, að ógleymdum Kristí, konungi dóms- dags, fram á víggarða borganna veifandi reykelsiskerjum og syngjandi hymna og bænastef, þar sem hinir heilögu voru beðnir ásjár gegn herjum Islams. Ýmsum getum hefur verið leitt að því, hvað ráði hafi gerðum Leós keisara III, sem fengið hefur viðurnefnið íkónóklast, myndbrjótur, í sögunni og annarra eftirmanna hans á valdastóli eins og Leós V. Sumir sagnfræðingar hafa talið að gerðum þeirra hafi verið beint gegn ofurvaldi klaustranna og árásirnar á mynddýrkunina hafi því verið yfirvarp eitt, það hafi verið vald 204
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.