Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1995, Side 12

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1995, Side 12
um þyljandi ljóð. Svo var annað sem kom mér á óvart; að Heimdellingarnir sem maður þekkti að heiman skyldu sitja þarna á öllum skrifstofum. Man effir einu atviki því tengdu: Það var sunnudagur og við Dagur að fara í mat í matsal rétt hjá þar sem við bjuggum. Dagur var ffekar síðhærður sem þótti ja á skjön á þessum árum, sérstaklega þarna austurff á. Með hár niður á herðar, í gamalli skyrtu og nokkuð rifnum gallabuxum. En einmitt þegar við erum að steðja þarna í mat, Dagur með sín löngu skref og ég trítlandi á eftir, rennur upp að matsalnum mikill bílafloti, þessar svörtu límosínur sem flokkurinn ók í. Nú, við steðjum þarna áffam og inní matsalinn að seðja hungur okkar. Nema seinna þann dag er ég kallaður fyrir skólastjórnina. Þá er allt orðið vitlaust því forseti Komsomol, ungkommúnistasambands Sovétríkjanna, hafði verið í einum af þessum bílum: feitur, Ijótur og lítill kall um fertugt. Hann hafði alveg tryllst við að sjá þennan síðhærða mann; hvað væri eiginlega að koma fyrir stofnunina? Ég veit reyndar ekki hvort hann hafi skipað svo fyrir að maðurinn yrði sendur úr landi þá þegar, en þeir voru aðeins búnir að kynnast Degi og vissu að hann var ekki auðveldur viðskiptis. Þannig að það var farið hljóðlega að mér og spurt, hvort ég gæti komið því fyrir að hann myndi láta klippa sig. En það vildi svo vel til að eitthvað var farið að hlýna í veðri, svo mikið að Dagur skrapp til rakarans tveimur dögum síðar og — lét krúnuraka sig. Enda gjarn á að fara ffá A til Ö. Þeim þótti maðurinn svolítið stórskorinn ... Ég var mikið að fjarlægjast leikbókmenntir á árunum kringum Moskvudvöl- ina. Dagur hefur eflaust haft sín áhrif en annars er maður að hverfa burt ffá þeim. Stóð reyndar til að ég settist í kvikmyndaskóla þarna útí Sovét, en má kannski segja að ákveðin handvömm í kerfinu hafi komið í veg fyrir það. Sá skriffinnur sem átti að sjá um þau mál lenti á fyfleríi í þrjá mánuði með þeim afleiðingum að umsóknin týndist. Þegar hún kom loksins í leitirnar hafði allt fyllst af Víetnömum sem flykktust til Sovétríkjanna þannig að ég komst ekki í skólann. Víetnamstríðið hafði því bein persónuleg áhrif á mig og forðaði íslenskum kvikmyndum ffá því að ég væri að væflast í kringum þær. Þannig ab þú kemur bara heim. Já, en stoppa ekki lengi við. Menntamálaráðuneytið auglýsti styrk til náms í pólsku í Póllandi. Ég sóttu um hann, vildi bara komast burt, hvað sem það kostaði, hvert sem var. Ég hefði þessvegna farið til Antarktíku. Ég fékk styrkinn og var tvö ár í Póllandi. Og ert að læra pólsku. Já eitthvað, en mest bara að lifa. 10 TMM 1995:3
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.