Tímarit Máls og menningar - 01.09.1995, Blaðsíða 40
Þær Herdís og Steinunn kunnu hvor um sig fleiri ævintýri en nokkur
hinna sagnakvennanna sem hljóðritað var eftir á þessu tímabili, en auðvitað
voru allmörg ævintýranna hljóðrituð eftir fleiri en einni þeirra. Flestar
kunnu Búkollu, en þar næst kom sagan Ása, Sigtiý ogHelga (sem sóttu eldinn)
og Helga karlsdóttir, einnig kölluð Kolrassa krókríðandi eða Loðinbarði Strúts-
son. Af skyldum ævintýrum skulu nefnd Smjörbítill og Gullintanni, Tröpp
tröllkona eða Lítill, Trítill ogfuglarnir, Fóafeykirófa (fettirófa), Þúfukerlingin,
og Kiðhús. Við athugun á myndskreyttum útgáfum einstakra íslenskra æv-
intýra allt frá upphafi þeirra um miðjan þriðja áratuginn og fram á þennan
dag sést að ævintýrin Ása, Signý ogHelga, Búkolla og Karlsson, Lítill, Trítill
og fuglarnir hafa oftast komið út einstök, en þar að auki Sagan af Helgu
karlsdóttur og sagan af Gípu, stelpunni sem ekki kunni sér magamál. Öll eru
þessi ævintýri stutt, söguþráðurinn einfaldur og orðalagið töluvert mótað,
einkum í samtölum, og hafa því orðið mjög vinsæl hjá yngstu börnunum.
Einnig voru gefín út með sama sniði ævintýrin Grámann í Garðshorni, Hlini
kóngsson, Hringur kóngsson, Kisa kóngsdóttir, Líneik og Laufey, Sagan af
Svanhvít karlsdóttur, Sálin hans Jóns míns, Surtla í Blálandseyjum og Velvak-
andi og bræður hans, lengri og flóknari, og útilegumannaævintýrið Sigríður
Eyjajjarðarsól. En heimildir um það hvaða ævintýri hafa þótt segjandi börn-
um eru reyndar mjög af skornum skammti og sennilega er eina safnið frá
19. öld það sem Páll Pálsson í Árkvörn skráði á árunum 1862 og 1863-64
eftir niðursetningskerlingunni Guðríði Eyjólfsdóttur þar á bæ. Alls eru
sögurnar 60 að tölu og af þeim 26 ævintýr og skemmtisögur og eru þar allir
helstu flokkar ævintýra og kímnisögur að auki. Að efni til stinga þau ekki
stórlega í stúf við ævintýri Herdísar Jónasdóttur svo langt sem þau ná, en
munurinn verður minni en ætla mætti á ævintýrum þeirra Guðríðar og
Steinunnar Þorsteinsdóttur því að Guðríður sagði Páli söguna af Lúpusi,
blæskylda Kolrössu krókríðandi. Þá eru í safni Páls þrjú hispurslaus ævintýri
um ástamál, en engin svipuð eru í ævintýrasafninu framangreinda frá
árunum 1964-1974. Af þessu má ráða að Páll hefúr verið sæmilega kunnug-
ur íslenska ævintýraheiminum eins og hann var orðinn á hans dögum þegar
verið var að efha í hið mikla og mikilvæga þjóðsagnasafn Jóns Árnasonar.
2
Sennilegast verður seint úr því skorið hvort meira eða minna kveður að
skáldskap í íslenskum ævintýrum eða erlendum. Þessi „veröld hugarburðar/
hún er stórum víðlendari" en „reynslu ríkið“ þar sem „raun og vera . . . á
heima“ svo að seilst sé í upphaf Rímna af Búa Andríðssyni og Fríði Dofra-
dóttur eftir Grím Thomsen. Það sést samt af Búkollu, Kiðuvalda og Kolrössu
38
TMM 1995:3