Tímarit Máls og menningar - 01.09.1995, Blaðsíða 82
Kíkí, vinir selsins Snorra og síðast en ekki síst, ef maður athugar uppbygg-
ingu myndarinnar, dýrin úr örkinni hans Nóa. Fíllinn, úlfaldinn og hjörtur-
inn á myndinni eru greinilega þau sömu og í útgáfu af sögunni um örkina
hans Nóa11 og vísunin þangað sýnir fjölda dýranna. Annað atriði í myndinni
undirstrikar að allt dýraríkið er saman komið, þær persónur sem ég taldi
upp eru í forgrunni hópsins, en þegar aftar dregur verða útlínur dýranna
óskýrari og renna að lokum saman í óendanlegan andlitslausan fjölda.
Þetta leiðir hugann að annarri sögu þar sem allir hlutir í heiminum áttu
saman að bjarga hetjunni, sögunni um dauða Baldurs: þar gráta æsir,
„mennirnir og kykvendin og jörðin og steinarnir og tré og allur málmur"12
til að reyna að endurheimta Baldur. En það dugar ekki til, og allt dýraríkið
og allir íbúar ævintýraskógarins megna ekki heldur að frelsa Putta. Saga
Putta er einnig að öðru leyti nauðalík sögunni af dauða Baldurs, báðir storka
þeir örlögunum, Putti með því að fara út í skóginn, Baldur með því að gerast
skotspónn ásanna. Báðum hefnist íyrir, Baldri með dauða, Putta með því að
lenda í klóm Nátttröllsins, og báða er reynt að frelsa á sama hátt, með
samtakamætti allrar náttúrunnar. í báðum sögum er líka illþýði sem ekki vill
taka þátt í átakinu, gýgurin Þökk í sögunni af Baldri sem í raun og veru er
Loki í dulargervi neitar að gráta Baldur og það kemur líka á daginn að það
sem vantar í kór dýranna er hið illa. Til að hægt sé að frelsa Putta þarf fulltingi
nornar, úlfs og stjúpu. Og hér skilur milli þeirra Putta og Baldurs, goðsög-
unnar og ævintýrisins; það sem goðunum tekst ekki tekst dvergum með
klækjum.
Leikið á hyskið, opnur 11-12
í Vondakastala búa úlfurinn, stjúpan og nornin og þau verða Maddamamma
og dvergarnir að fá í lið með sér til að frelsa Putta litla. Næsta opna sýnir
aðkomuna að Vondakastala vinstra megin, en samtal Möddumömmu og
illþýðisins hægra megin. Fylgifiskar illþýðisins eru hefðbundnir; slöngur
skreyta dyrastafi, leðurblökur og ránfuglar sveima um og sitja á kastalanum.
Það er meira að segja hugsanlegt að Bláskjár sé í haldi í kastalaturninum efst
til vinstri. Þá situr örn sem ég er næstum því viss um að er upprunninn í
teiknimyndasögunum um goðheima á trjágrein fyrir utan kastalann. En
nornin, stjúpan og úlfurinn eru ekki á því að hjálpa til:
„Heyr á endemi,“ hvæsti stjúpan og úlfurinn hló kuldalega.
„Hefurðu aldrei lesið ævintýri?“ hneggjaði nornin. „Veistu ekki
að þau yrðu handónýt ef við tækjum upp á því að gera góðverk?"
80
TMM 1995:3