Tímarit Máls og menningar - 01.09.1995, Síða 33
ingargildi sitt. Þrátt fyrir þetta ber að hafa í huga að það var eðli sagnahefð-
arinnar gömlu — og á greinilega við enn þann dag í dag — að laga sögur að
áheyrendum hverju sinni. Þróunin er sem sagt fullkomlega eðlileg, en blóð-
takan er mikil.
Hetjan send eftir konu
Eins og áður segir eiga hinar illræmdu stjúpmæður það til að senda stjúpsyni
sína eftir konum sem erfitt er að hafa uppi á. Margar þeirra sagna sem
innihalda slíkar álagasendingar eru í raun sama eðlis og „brúðarleitarsögur“
þær sem nýlega voru teknar til rannsókna af Marianne E. Kalinke:15
The plot of the bridal-quest romances is governed throughout by
the hero’s explicit or implicit efforts to attain his end, marriage
with the desired maiden.
Sá meginmunur er þó á þeim sögum sem Kalinke skilgreinir sem „bridal-
quest romances“ og þeim sem hér eru til umljöllunar, að í þeim fyrrnefndu
fara söguhetjurnar sjálfviljugar í bónorðsfarir, en í stjúpusögum eru hetjurn-
ar sendar effir tilteknum konum. Minnið um álagasendingu effir konu má
finna í Grógaldri ogFjölsvinnsmálum, Hálfdanar sögu Eysteinssonar, Hjálmþ-
érs sögu og Ölvés, Úlfhams sögu, Álaflekks sögu, Himinbjargar sögu, Sögunni
af Hermóði ogHáðvöru og Sögunni af gullvendinum.'6
Ýmis konar sendingar eru tíðar í íslenskum ævintýrum, bæði forsending-
ar (þ.e. á vegum höfðingja eða annarra valdhafa, sem oftast nær vilja hetjuna
feiga) og sendingar eins og hér um ræðir, þar sem hetjan er send langa
hættuför í álögum. Álögin orka þá sem e.k. dáleiðsla á þolandann og leggjast
á sál hans.
í örfáum tilvikum er álagavaldur sendinganna ekki stjúpmóðir, s.s. í
Hálfdanar sögu Eysteinssonar þar sem álagavaldur og sú kona sem hetjan er
send effir eru ein og sama manneskjan. Þá má nefna að í Álaflekks sögu er
álagavaldur tröllaættar, en hlutverk tröllkerlinga, galdranorna og stjúp-
mæðra í ævintýrum er þó oft ast nær hið sama. Einna dæmigerðast er minnið
í Hjálmþérs sögu og Ölvés, þar sem álögin eru hefnd stjúpu sem hefur verið
forsmáð af stjúpsyni sínum eff ir misheppnaðar tilraunir til að ná ástum hans.
Hún segir:17
... það legg ég á þig, að þú skalt hvergi kyrr þola, hvorki nótt né
dag, fyrr en þú sérð Hervöru Hundingsdóttur, nema á skipum
þínum og í tjaldi.
TMM 1995:3
31