Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1995, Qupperneq 36

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1995, Qupperneq 36
I mörgum síðari tíma ævintýrum má finna leifar af minninu um álaga- sendingu eftir konu, þar sem tilgangurinn er ekki gagngert sá að leita uppi ákveðna konu. Söguhetjan er send á afskekkta staði, oftast nær til trölla, og þá annað hvort til að sækja tiltekinn hlut eða hljóta skaða af. Þessar sendingar geta ýmist verið forsendingar eða lagðar á með álögum. Þegar hetjan hefur leyst verkefni sitt og sigrast á tröllunum bjargar hún jafnframt prinsessu úr háska og fær hennar. Hetjunni hlotnast því kona og konungdæmi fýrir hugrekki sitt og hreysti.20 En hvernig sem álagasendingar eft ir konu eru annars til komnar, þá þjóna þær í raun því hlutverki einu að leiða saman tilvonandi hjón. Uppruni Stjúpuminnið var, eins og áður segir, gífurlega vinsælt og útbreitt minni. Vegna eðlis, sem felur í sér sammannlega reynslu, er ekki auðvelt að tengja uppruna þess ákveðnu menningarsvæði, en þó voru vinsældir þess og út- breiðsla mismikil meðal einstakra þjóða. Landnámsmenn íslands hafa að öllum líkindum þekkt minnið um vondu stjúpuna, enda kemur það fýrir í hinu upprunalegra formi — án álaga — í elstu bókmenntum okkar. Sögur af vondum stjúpum sem leggja á stjúpbörn sín þekkjast líka víða. Stjúpu- og álagaminni nágrannalandanna eru yfírleitt myndhverfandi, þ.e. mönnum er umbreytt, t.d. í dýr. Slíkar sögur voru þó ekki algengar nema á íslandi og gelísku menningarsvæði. Það má gera ráð fýrir að myndhverfandi álög hafi borist úr suðaustlægum áttum til Evrópu, þar með talið til Bret- landseyja og Skandinavíu og að lokum til íslands. Stjúpuminnið í sögum frá Skandinavíu og Færeyjum er þó þegar á heildina er litið annars eðlis en á íslandi. Sögurnar bera raunverulegra yfirbragð og standa nær fólkinu og daglegu lífi þess. Ekki er um að ræða eins skörp skil milli raunveruleikans og hins ímyndaða ævintýraheims, eins og í íslensku sögunum. Þær standa því í rauninni, þrátt fyrir staðlað yfirbragð, nær þjóðsögnum en ævintýrum. Meðal Gela (þ.e. Ira og afkomenda þeirra í öðrum löndum, s.s. Skotlandi) þróaðist álagaminnið með þeim sérstaka hætti að til urðu álagasendingar.21 Myndhverfandi álög lifðu áfram, en þetta sérstaka afbrigði virkaði öðruvísi, þar sem álögin lögðust á sálina og varð sem þolandinn fengi annan vilja en sinn eiginn, þar til ákveðinni sendiför var lokið. Álagasendingarnar þekkjast svo til eingöngu í sögum Gela og ísiendinga og eru þar af leiðandi einstakur vitnisburður um þróun og gengd munnmæla. Aðeins tvö dæmi finnast á öðrum Norðurlöndum, og er þar um að ræða síðari tíma áhrif frá íslandi.22 Menn hafa því litið til írlands í leitinni að uppruna, enda eru ýmis þjóðsagna- og ævintýraminni sem þekkjast hérlendis algeng meðal Gela. Allir þeir sem 34 TMM 1995:3 J
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.