Tímarit Máls og menningar - 01.09.1995, Side 67
Hann sótti úlpuna í snarhasti og settist síðan við hliðina á Kidda
sem leit grátbólgnum augum á vin sinn. Tryggvi fékk kökk í hálsinn
en setti úlpuna varfærnislega yfir Kidda. Hann tók síðan ískaldar
hendur hans undan peysunni og blés á þær. Hendurnar voru
helkaldar og ataðar storknuðu blóði. Tryggvi tók af sér vettlingana
og færði Kidda í þá. Síðan tók hann utan um Kidda og reyndi að
hlýja honum. „Kiddi við verðum að fara heim núna,“ hvíslaði
Tryggvi effir að hafa setið þegjandi hjá vini sínum í nokkrar
mínútur. „Mamma þín var orðin hrædd um þig og bað mig að
finna þig. Við getum ekki breytt því sem er búið og gert, Kiddi. Við
skulum koma núna.“ Að svo mæltu stóð hann á fætur og togaði
síðan í Kidda. Þeir renndu upp rennilásnum í sameiningu og
Tryggvi setti húfúna, sem hann hafði tekið með heiman ffá sér, á
höfuðið á Kidda. (140)
Þetta er falleg, tilfinningarík lýsing á hlýrri vináttu milli tveggja drengja.
Ennþá nær hefðbundnum stelpubókum kemst Þorgrímur í lýsingum sínum
á tilraunum strákanna til að yrkja ljóð og á yfirskilvitlegum atvikum. Fyrra
dularfulla atvikið gerist í skíðaferðalagi snemma vetrar. Þá fara nokkrir
krakkar í andaglas, og meðan veðurofsinn dynur á skálanum spáir andinn í
glasinu fyrir um dauða Agnesar á ógnvænlegan hátt. Síðara atvikið gerist við
gröf Agnesar. Þar hittir Kiddi frakkaklæddan mann sem segir honum að
vinkona hans sé á góðum stað og henni líði vel. „Hvað ert þú að skipta þér
af þessu,“ spyr Kiddi snúðugt og maðurinn svarar:
„Ég kem þar sem mín er þörf. Þú mátt ekki syrgja vinkonu þína
lengi því hvert eitt tár, sem þú fellir, kvelur hana. /. . ./ Agnes er
komin á annan og betri stað þar sem hennar er þörf. Ef þú grætur
mikið veitist henni erfiðara að skilja við þetta tilverustig. (147)
Þar með hefur verið opnað fýrir nýrri framtíð með nýrri stúlku, og sagan
endar á því að Sóley kemur aftur suður.
Aðal strákadraumurinn í þessari bók er leitin að ókunna manninum sem
drap Agnesi. Þar fær Kiddi verðugt verkefni og verðugan andstæðing —
fullorðinn karlmann sem þar að auki reynist vera gamalreyndur glæpamað-
ur. Islandsmótið í innanhússknattspyrnu hverfur í skuggann af njósnastörf-
unum, og Kiddi skrópar meira að segja í úrslitaleiknum, því einmitt þann
dag sér hann óþokkann aftur af tilviljun, eltir hann heim og tekst á við hann
uns annar hefur sigur. Þið megið geta hvor.
Tár, bros og takkaskór er spennandi alvörusaga og Þorgrími hefur aldrei
tekist betur upp. Samkvæmt munnlegum upplýsingum sem ég hef aflað mér
meðal kennara og bókavarða launuðu lesendur honum með aðdáun og
TMM 1995:3
65