Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1995, Page 68

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1995, Page 68
tryggð við söguna löngu eftir að jólabókaflóðinu 1990 lauk. Eftir hana verður þriðja bókin um Kidda hastarleg vonbrigði því þar er eiginlega enginn söguþráður og spennan byggð upp kringum ósköp kjánalega hluti. Eitt af því sem skilur sögur Þorgríms frá sögum fyrirrennara hans, Eðvarðs Ingólfssonar og Andrésar Indriðasonar, er að hann leyfir sér í öllum sögun- um að vera svolítið klúr. Það er strákaelementið sem á að vega upp á móti öllum mjúku stelputilfinningunum. Áður var getið um vangaveltur Tryggva og Kidda um kynhneigðir Skapta. Þær halda áfram á gamansömum en all-berorðum nótum: „Auðvitað er hann ekki hommi en þú mátt mín vegna mæta með korktappa í skólann á morgun ef þú heldur að hann sé skotinn í þér. Kannski að nýja stelpan og nýi strákurinn í bekknum fari bara að slást um þig,“ sagði Kiddi og glotti lymskulega framan í Tryggva. „Kannski verður Skapti hrifinn af litla skaftinu þínu þegar þið farið saman í sturtu eftir leikfimitímana? /.../“ (Tár, 14-15) Minnst er um slíka dirfsku í fyrstu bókinni, enda söguhetja þá enn alveg óreynd. Það djarfasta þar eru prumpleikir sem Tryggvi stundar vegna þess að honum finnst prumpufýlan sín svo góð (Með fiðring, 114, 126). Víða í miðbókinni er strákalegt kynferðishjal, til dæmis þegar Skapti segir frá tilraunum sínum til að láta ólík dýr eignast afkvæmi saman (24), þegar Kidda verður „illt í klofinu11 við að horfa á Skapta gera ballettæfmgar (101) og þegar Kiddi sendir bolta „beinustu leið í punginn“ á glæpamanninum (168). ítrekað er í Mitt er þitt að Kiddi sé hinn mjúki maður sem allar stúlkur dreymi um, til dæmis þegar hann grætur Agnesi uppi á þaki meðan hinir krakkarnir eru að skemmta sér fyrir neðan hann (36). Þeir Tryggvi eru líka fúsir til að bjarga prinsessu fr á ljótum dreka þegar tækifæri gefst. En langmest er um gróft orðalag, lýsingar og atferli í þeirri bók. Hvað eftir annað hagar fólk sér eins og „einhver hefði sett kláðaduft í buxurnar“ hjá því (55,58); afi Sóleyjar segir frá kvenpersónu sem var „víst ansi lausgirt, blessunin" (83), og hann lýsir því líka hvernig fréttirnar þrykktust á rasskinnarnar á fólkinu í gamla daga þegar það skeindi sig á dagblöðum: „Þá var kátt í höllinni og mikið hlegið. Við gerðum stundum í því að hlaupa með fréttir, nýjar eða gamlar, á afturendanum um baðstofuna og viðhafa rassaköst. Á meðan blöðin entust gat maður séð á rössum systkinanna hvort þau hefðu þurft að fara á kamarinn um daginn. Ef svo var, var komin önnur ffétt á bossann.“ (86) Þetta minnir ekki á annan höfund meira en Guðberg Bergsson. 66 TMM 1995:3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.