Gerðir kirkjuþings - 1994, Blaðsíða 101
1994
25. KIRKJUÞING
3, mál
Öllum meiri háttar aga- eða siðferðisbrotum starfsmanna íslensku þjóðldrkjunnar og
alvarlegum ágreiningsefiium á kirkjulegum vettvangi getur biskup Islands vísað til úrskurðar
sérstakrar nefiidar, úrskurðamefiidar.
Biskup íslands skipar úrskurðamefhd til fjögurra ára í senn. Skal kirkjuþing tilnefha
tvo menn í nefiidina og sé annar þeirra leikmaður, prestastefiia tilnefriir einn og dóms- og
kirkjumálaráðherra einn og sé hann löglærður. Einn nefiidarmann skipar biskup Islands án
tilnefiiingar og sé hann formaður nefhdarinnar. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti.
Ágreiningsaðilar geta farið þess á leit við biskup íslands, að mál fari fyrir
úrskurðamefhd og ákvarðar hann þá, hvort orðið verði við þeirri málaleitan.
Úrskurðamefiid skal að jafhaði leggja úrskurð á mál innan fjögurra vikna frá því að það
berst henni til meðferðar. Úrskurðir nefhdarinnar skulu vera rökstuddir.
Áfrýj unamefnd
12. gr.
Niðurstöðu úrskurðamefiidar, sbr. 11. gr., má skjóta til áfrýjunamefhdar, sem
dóms- og kirkjumálaráðherra skipar til ljögurra ára í senn. Hafa málsaðilar og biskup
Islands heimild til áfrýjunar. Arýjunarfrestur er þijár vikur.
Afiýjunamefiid er skipuð þrem löglærðum mönnum, sem fullnægi almennum
skilyrðum til þess að vera skipaðir hæstaréttardómarar, og sé einn þeirra formaður. Skulu
þeir allir skipaðir samkvæmt tilnefhingu Hæstaréttar. Varamenn skulu skipaðir með sama
hætti. Við meðferð einstakra mála skal nefhdin skipuð tveim sérfróðum mönnum til
viðbótar, sem nefhdin kveður sjálf til starfans.
Úrskurðir áfrýjunamefiidar, sem skulu vera rökstuddir og að jafhaði kveðnir upp
innan sex vikna frá því að mál barst nefhdinni, em endanlegir og bindandi innan valdsviðs
íslensku þjóðkirkjunnar.
Varði mál agabrot eða embættisfærslu prests sérstaklega, getur biskup Islands vikið
hlutaðeigandi úr starfi meðan um mál hans er fjallað í úrskurðamefhd og áfiýjunamefiid, og
skal þá annar settur eða ráðinn til að gegna prestsstarfinu á meðan.
Kirkjuþing setur nánari ákvæði um málsmeðferð fyrir úrskurðamefhd og
áfrýjunamefiid í starfsreglur skv. 63. gr. laga þessara.
Nú er biskup Islands vanhæfur til ákvarðanatöku skv. 11. og 12. gr. laga þessara,
sbr. ákvæði II. kafla stjómsýslulaga nr. 37/1993, og kemur þá sá vígslubiskup, sem eldri er
að biskupsvígslu, í hans stað.
Um hæfi nefhdarmanna í úrskurðamefiid og áfiýjunamefhd til meðferðar einstakra
mála gilda ákvæði n. kafla stjómsýslulaga nr. 37/1993 svo og almenn ákvæði
stjómsýslulaga um málsmeðferð að því marki sem starfsreglur, er settar verða skv. 63. gr.
þessara laga, mæla eigi fyrir á annan veg.
Um staðgengíl biskups íslands
13. gr.
í forföllum biskups íslands kveður hann þann vígslubiskup, er hann kýs, til þess að
gegna embætti sínu um stundar sakir. Hið sama gildir sé biskup íslands vanhæfur til
meðferðar einstaks máls, sem undir hann ber að lögum, sbr. þó 12. gr. laga þessara.
Nú fellur biskup Islands frá eða lætur af embætti og skal þá sá vígslubiskup, sem
eldri er að biskupsvígslu, gegna embætti hans þar til biskupskjör hefur farið fram og nýr
biskup íslands hefur fengið skipun í embætti sitt.
96