Gerðir kirkjuþings - 1994, Blaðsíða 135
1994
25. KIRKJUÞING
3. mál
í prestaköllum, þar sem í eru fleiri en ein kirigusókn, skal oddvitum
sóknamefiidanna skylt að hafa sameiginlega fimdi að jafnaði eigi sjaldnar en einu sinni
á árí ásamt sóknarpresti.
Starfsmenn kirkjusókna
62. gr.
Kirkjuþing skal setja ákvæði um stöðu og störf starfsmanna sókna í starfsreglur, sbr.
63. gr.
IV. kafli
Starfsreglur
63. gr.
Um aðra staifsmenn þjóðkirkjunnar en þá, er fyrr hafa verið taldir, fer eftir
almennum reglum um starfshætti hennar, er kirkjuþing setur og hafi að geyma nánari
fyrirmæli um stjómun og starfshætti kirkjunnar á grundvelli laga þessara. í reglum þessum
skal m.a. kveðið á um hlutverk starfsmanna þjóðkirkjunnar eftir því, sem við getur átt.
Kirkjuþing setur jafiiframt nánari reglur um tiltekna þætti kirkjustarfsins, sem eigi er
fjallað um í hinum almennu reglum, sem getið er um í 1. mgr. Þá staðfestir kirkjuþing
stofiiskrár og nánari reglur um stjóm og starfsemi stofnana, er starfa á vegum
þjóðkirkjunnar, en kirkjuráð staðfestir endurskoðaða reikninga þeirra stofiiana og birtir þá
síðan í skýrslu sinni til kirkjuþings.
Kiriguráð gefiir út reglur þær og stofiiskrár, er um ræðir í 1. og 2. mgr., ásamt
breytingum, sem kunna að verða gerðar á þeim. Skulu reglur og stofhskrár, sem og
breytingar á þeim, birtast á prenti í síðasta lagi innan íjögurra vikna frá því að kirkjuþing
samþykkti þær. Ber kirkjuráði að hafa eftirlit með því, að eintök þeirra séu aðgengileg fyrir
almenning frá þeim tíma, auk þess sem kirkjuráð annast dreifingu þeirra og kynningu með
tilhlýðilegum hætti.
Hafi eigi verið á annan veg mælt í reglum þeim, sem hér um ræðir, öðlast þær, sem
og breytingar, bindandi gildi á þrítugasta degi frá útgáfudegi þeirra. Eftir þann tíma ber
öllum starfsmönnum þjóðkirkjunnar, sem og öðrum þeim, sem reglunum er ætlað að binda,
að fara eftir þeim.
V. kafli
Réttarstaða starfsmanna
64. gr.
Þjónandi prestar þjóðkirkjunnar, sbr. 31. gr., njóta réttinda og bera skyldur sem
opinberir starfsmenn eftir því, sem nánar er mælt fyrir um í lögum nr. 38/1954 svo og
öðrum lögum, er kveða á um réttarstöðu opinberra starfsmanna, sbr. þó 11. og 12. gr. laga
þessara. Hið sama gildir um aðra starfsmenn þjóðkirkjunnar, eftir því sem við getur átt.
Um lágmarkslaunakjör þeirra starfsmanna þjóðkirkjunnar, sem taka laun samkvæmt
launakerfi opinberra starfsmanna, fer eftir lögum um kjaradóm nr. 92/1982 með áorðnum
breytingum eða lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna nr. 94/1986 með áorðnum
breytingum, eftir því sem við getur átt.
130