Gerðir kirkjuþings - 1994, Blaðsíða 102
1994
25. KIRKJUÞING
3, mál
3. Vígslubiskupar
a. Almennt
14. gr.
Vígslubiskupar skulu vera tveir með aðsetri á hinum fomu biskupsstólum, í
Skálholti í Biskupstungum og á Hólum í Hjaltadal. Þeir skulu annast þau biskupsverk, er
biskup íslands felur þeim.
Forseti íslands skipar vígslubiskupa.
b. Kosning vígslubiskupa
15. gr.
Um kosningu og kjörgengi vígslubiskupa gilda sömu reglur og um biskupskjör eftir
því sem við getur átt, sbr. 7. og 8. gr.
c. Vígslubiskupsumdæmi o.fl.
16. gr.
Umdæmi vígslubiskups í Skálholti nær yfir Múla-, Austfjarða-, Skaítafells-,
Rangárvalla-, Ámess-, Kjalamess-, Reykjavíkur, Borgarfjarðar-, Snæfellsness og Dala-,
Barðastrandar- og ísaijarðarprófastsdæmi.
Umdæmi vígslubiskups á Hólum nær yfir Húnavatns-, Skagafjarðar-, Eyjafjarðar-
og Þingeyjarprófastsdæmi.
d. Samráðsfundur
17. gr.
Biskup Islands skal kalla vígslubiskupana til samráðsfúndar fyrir prestastefiiu,
kirkjuþing og aðalfúnd kirkjuráðs og oftar ef þurfa þykir. Samráðsfúndur biskups Islands og
vígslubiskupa skal búa þau mál, er varða kenninguna, helgisiði og helgihald, í hendur
prestastefnu og tilnefhir leikmenn til setu á kirlquþingi eftir því, sem nánar er mælt fyrir um í
19. gr.
Nánari ákvæði um starfssvið vígslubiskupa skal setja í almennum starfsreglum, sbr.
63 gr.
4. Kirkjuþing
a. Almennt
18. gr.
Kirkjuþing hefúr æðsta vald í málefiium íslensku þjóðkirkjunnar innan lögmæltra
marka.
Málefni, er varða kenningu kirkjunnar og agavald, heyra þó undir biskup íslands,
sbr. 10., 11., 17. og25.gr.
Samþykktir kirkjuþings um guðsþjónustuhald, helgisiði, skím, fermingu og
altarissakramenti verða að sæta umfjöllun prestastefhu áður en þær hljóta endanlega
afgreiðslu á kiriquþingi.
97