Gerðir kirkjuþings - 1994, Blaðsíða 194
1994
25. KIRKJUÞING
10. mál
7. gr.
Nú eru sóknir sameinaðar og er þá heimilt að gera þær sóknarkirkjur sem lagðar eru
niður sem slíkar að kapellum. Þar sem hefð stendur til er heimilt að þær haldi
kirkjunafni sínu.
Þegar sóknir eru sameinaðar skal ákveða hvaða sóknarkirkjur verði kapellur. Falla
þær í umsjá hins sameinaða safnaðar að undangenginni samþykkt aðalsafnaðarfúndar
og með samþykki biskups og prófasts.
Sé um greftrunarkirkju/kapellu , sbr. 6. gr. laga nr. 25/1985, að ræða, greiðist rekstrar
og viðhaldskostnaður af eign og tekjum viðkomandi kirkjugarðs.
Nú breytast forsendur byggðar þannig að söfnuðir sameinast eða samþykkt er, sbr.
þessar reglur, að reisa nýja sóknarkirkju í stað gamallar. Þá er heimilt með samþykki
aðalsafnaðarfimdar, prófasts og biskups að taka kirkju ofan.
Leita skal álits Þjóðminjavarðar um það hvort varðveita skuli slíkar aflagðar kirkjur
annars staðar. Söfiiuði er ekki skylt að bera kostnað af þeirri varðveislu.
m.kafli
Um máldaga, kirkjubók og réttindi kirkna.
8. gr.
Biskup setur hverri kirkju máldaga, kirkjuskrá, sbr. lög nr. 25/1985, 23. gr.5.1ið. í
máldaga skal greina eignir kirkju, tekjustofna og réttindi, kvaðir er á kirkju kunna að
hvíla, sóknarmörk og þjónusturétt, sem sóknin á tilkall til. Máldagann og breytingar á
honum skal skrá í sérstaka bók, máldagabók, er biskup löggildir. Afrit máldagans
geymist í vörslu biskups..
Kapellu skal einnig settur máldagi.
Sóknamefnd varðveitir máldagabók og ber ábyrgð á að máldagi greini jafnan frá
eignum og réttindum kirkju. í máldagabók skal einnig skrá eins haldgóðar upplýsingar
og völ er á um kirkjuna, byggingarsögu hennar, endurbætur, viðhald, búnað og
kirkjumuni er kirkjan á. Biskup og prófastur kanna máldaga er þeir vísitera, árita
máldagabækur og gera athugasemdir ef efni þykja standa til þess.
Máldagar þeir, er greinir í erindisbréfi handa biskupum 1. júlí 1746, 15. gr., sbr.
konungsbréf 19. maí 1747 um gegnumdregnar bækur kirkna, skal varðveita svo sem
tíðkast hefur.
Eldri máldaga kirkju skal eftir föngum skrá í máldagabók.
189