Gerðir kirkjuþings - 1994, Blaðsíða 206
1994
25. KIRKJUÞING
10. mál
13.gr.
Nú er kirkja reist eða endurbyggð frá grunni og skal þá vígja hana. Prófastur skoðar
kirkju, sem óskað er vígslu á, og kveður á um, hvort hún er vígsluhæf. Eigi þarf að
vígja kirkju, þótt innbúnaði hennar sé breytt.
Biskup Islands vígir kirkjur eða vígslubiskup í umboði hans sbr. þó ákvæði
handbókar ísl. kirkjunnar frá 1981 bls. 175.
14. gr.
Nú er kapella reist af öðrum en þjóðkirkjusöfnuði og óskað eftir vígslu. Skal þá
biskup, áður en til vígslu kemur, hlutast til um að henni sé settur máldagi, sbr. 8. gr.,
þar sem kveðið er á um hlutverk kapellunnar, fjárreiður, eftirlitsskyldu prófasts og/eða
sóknarprests. Þá sé einnig gætt friðhelgi hennar sbr. 11. gr.
15. gr.
Nú er kirkja aflögð, og skal þá lýsa því í sérstakri athöfn, að hún gegni eigi framar
hlutverki sem vígt guðshús, sbr. 1. gr. enda er óheimilt að taka hana til annarra nota,
fyrr en svo er gert, og biskup heimilar. Um muni hennar og eignir fer svo sem segir í
lögum nr. 25/1985, 6. gr. og þjóðminjalögum nr. 88/1989. Sé kirkja tekin ofan, skal
að jafnaði marka þann stað, þar sem altari kirkjunnar var.
16. gr.
Sóknarprestur ræður, í samráði við sóknarnefnd, með hveijum hætti sóknarkirkja
og safnaðarheimili verði notuð. Eigi má leyfa neina þá notkun kirkju, er ekki
samrýmist vígslu hennar, sbr. 11. gr.
Nú er safnaðarheimili reist á vegum sóknar, skal þá við notkun þess gæta tilgangs
safiiaðarstarfs.
Nú greinir sóknarprest og sóknamefnd á um notkun kirkju og safnaðarheimilis, og
skal þá leita úrskurðar prófasts. Úrskurði hans má vísa til biskups, og er úrskurður
hans endanlegur.
Eigi má geyma í kirkju annað en muni hennar og búnað og hluti, er varða
safnaðarstarfið. Forna muni kirkjunnar skal varðveita þar, sé geymsla þeirra þar talin
tryggileg að mati biskups og þjóðminjavarðar sbr. IV. kafla þjóðminjalaga frá 1989.
201