Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2013, Síða 154
aðstoða fólk við að vinna úr erfiðri reynslu efitir áföll og ofbeldi. Hvernig
nálgast og túlka þeir aðilar skömmina og merkingu hennar? Er skömmin
einungis neikvæð eða má sjá eitthvað jákvætt við hana?
Eðli skammarinnar og afmörkun
Einn þeirra sem hefur velt spurningum um skömmina fyrir sér er geðlækn-
irinn og sálgreinirinn Johan Beck-Friis en hann segir hana hafa bæði
jákvæðar og neikvæðar hliðar.25 Flestallir kannist við hana í aðstæðum
sem þeim finnst þeir ekki eiga heima í, þar sem þeir séu á einhvern hátt
utanveltu, óhreinir eða dugi ekki. I slíkum tilvikum sé tilfmningin neikvæð
þótt misjafnlega sterk sé. Hin neikvæða skömm spannar að mati Beck-Friis
allt frá eðlilegri feimni yfir í það að vera svo mögnuð að helst megi líkja
henni við sálræna lömun. Sem slík sé skömmin mjög viðsjárverð, bæði
fyrir þá persónu sem ber hana og umhverfið. „Sterk skömm sem nær taki
á okkur í bernsku og við getum ekki varið okkur gegn getur beinlínis verið
stórhættuleg. Skömm sem við þolum ekki getur leitt til óskammfeilni sem
hefur neikvæð áhrif á umhverfið. Hún getur jafnvel leitt til dauða þar sem
sjálfsmorð getur verið ein afleiðing óþolandi skammarviðbragða.“26
Skammartilfinningin á þó ekki síður upptök sín hið innra með mann-
inum, telur Beck-Friis, og hljómar þá líkt og viðvörunarbjalla einmitt á því
augnabliki þegar persónan er við það að gera eitthvað sem hún veit af raun
að getur framkallað óæskileg viðbrögð. Sem slík geti skömmin verið jákvæð,
þ.e. hún vari persónuna við og varni því sem sé óæskilegt og óviðeigandi,
fyrir persónuna sjálfa og samfélagið. Beck-Friis telur samkvæmt þessu að
skömmin hafi augljóslega þróast sem siðferðilegt verkfæri samfélags manna
í aldanna rás, hún hafi ákveðnu hlutverki að gegna fyrir samfélagið og
tilheyri grundvallarforsendum þess. Við þurfum á skömminni að halda,
áréttar Beck-Friis, til þess að tengjast og viðhalda tengslum hvert við annað.
Hlutverk skammarinnar í þessu tilliti sé að vera nauðsynlegur grundvöllur
hluttekningar milli fólks. Hún verði til í kjölfar þess þegar ósk um tilfinn-
ingalega gagnkvæmni liggi fyrir en sú ósk rætist ekki. Þá skammist maður
sín. Mannleg tengsl sem rofna kalli á skömm. Þegar skömm sé til staðar sé
möguleiki á enduruppbyggingu tengsla og jafnvel skaðabótum eftir því sem
25 Johan Beck-Friis, Den nakna skammen -grundfór depression eller vdg till ömsesidighet?, Stockholm:
Natur & Kultur, 2009, bls. 37.
26 Sama heimild, bls. 39. Lausleg þýðing greinarhöfundar.
152