Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2013, Side 160

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2013, Side 160
mér að kenna.“ Svipuð varnarviðbrögð komi fram í setningum eins og: „Hvað gerði ég til að eiga þetta skilið?“ og „Hvers vegna stöðvaði ég þetta ekki?“45 Þolendur reyni að halda í sjálfsvirðinguna og grípi til ýmissa skýr- inga. Samfélagsleg viðhorf ýta því miður undir slíkar skýringar, segir Blume, og vinna þar með gegn því að ábyrgðin sé staðsett á réttum stað. Karlar séu t.d. ógjarnan kallaðir til ábyrgðar fyrir kynferðislegt ofbeldi heldur sé annarra skýringa leitað, annaðhvort hjá konum þeirra eða börnunum sem þeir beita kynferðisofbeldi. Þannig sé leiðin greið fyrir geranda kynferðisof- beldis að kynda undir sektarkennd þolenda. Blume vitnar til orða barna sem hún hefur haft til meðferðar og beitt voru kynferðisofbeldi. Þau ríma við orð karlmannanna sem tjáðu sig við DV og varða sektarkenndina ekki síður en skömmina. Blume talar um „survivor guilt“ sem þá reiði og biturleika sem fórnarlömb áfalla og ofbeldis létta af gerandanum þegar þau taka sökina á sig: „Fyrst svona mikið illt kom fyrir mig, hlýt ég að hafa verið vond sjálf.“ „Fyrst ég barðist ekki á móti og klóraði og beit, hlýt ég að bera ábyrgð.“46 Skömmin hefur ekki yfirgefið fórnarlambið þótt sektarkennd þjaki það líka heldur fylgir því á formi lítillar sjálfsvirðingar. Skömmin hvíslar í eyra fórnarlambsins orðum eins og: „Þú ert vond, ógeðsleg, óhrein“, og sá sem er það á hvorki skilið kærleika né virðingu.47 Guðfræðingurinn Marie M. Fortune tekur undir með Blume varðandi upplifanir þolenda kynferðisofbeldis af bæði skömm og sektarkennd og leggur í því sambandi áherslu á innhverfingu menningarlegra siðferðisvið- miða og reglna. Þar er hún á svipuðum nótum og Bernard Williams hér að framan.48 Flest allt sem tengist kynlífi í vestrænni menningu, bendir hún á, hefur annaðhvort talist hættulegt eða skammarlegt. Slík viðhorf ýti undir hræðslu og óöryggi fólks á kynlífssviðinu. Margir kristnir söfnuðir veki enn í dag skömm og sektarkennd með fólki sem stundi kynlíf án þess að vera í hjónabandi og verði fólk fórnarlömb kynferðisleg ofbeldis sé allteins víst 45 E. Sue Blume, Secret Survivors, bls. 108-109. 46 Sama heimild, bls. 111. 47 Sama heimild, bls. 112. 48 Marie M. Fortune, Sexual Violence. The Sin Revisited, Cleveland: The Pilgrim Press, 2005, bls. 47-73. Hér ber þess að geta að Fortune tengir umræðu sína um kynferðislegt ofbeldi ekki síst hugtakinu synd. Það gerir hún á áhugaverðan hátt en um það hefur greinarhöfundur fjallað ítarlega í öðrum greinum og mun því ekki gera það hér. Sjá Sólveig Anna Bóasdóttir, „Kirkjan og kynferðisofbeldi. Gerendur kynferðislegs ofbeldis - frá guðfræðilegu og siðfræðilegu sjónarhorni“, Ritröð Guðfritðistofnunar 31/2010:2, bls. 144-161; „Ábyrg og réttlát viðbrögð gagnvart þolendum kynferðisofbeldis. Guðfræðilegt og siðfræðilegt sjónarhorn", Ritröð Guðfrœðistofnunar 32/2010:2, bls. 97-117. 158
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.