Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2013, Side 79

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2013, Side 79
Bail bendir á að yfirleitt sé ekki unnt að aldursgreina sálmana með neinni vissu og það sé ómögulegt að rekja þá aftur til ákveðinna aðstæðna sem hafi skapað þá.19 Sálmarnir höfði til ímyndunaraflsins og í þessu tilfelli tjái sálmurinn reynsluna af ofbeldi. Einnig bendir hún á muninn sem er á táknrænum skilningi á borginni annars vegar og óbyggðinni hins vegar. Þessa táknrænu staði megi einnig skilja þannig að borgin sé líkami konunnar. Sú kona, sem gert er ráð fyrir að tali í sálminum, treystir Guði og hlýtur lækningu við þeim glæpum sem framdir hafa verið gagnvart henni og eignast nýja sjálfsmynd andspænis fjandmönnunum með því að tjá sig og biðja til Guðs. Yvonne Sophie Thöne hefur nýlega skerpt þessa áherslu. I grein sinni „Stay in the Desert, Prowl in the City“20 greinir hún textann með aðferðum frásagnarfræði (e. narratology). A sviði frásagnarinnar eru sögupersónur hennar, tími og rúm mikilvægustu greiningarhugtökin. Tvennt skiptir máli þegar kemur að tíma: þegar horft er til baka í v. 15, aftur til gleðiríkrar fortíðar (sbr. í Slm 42 og 43), og svo þegar horft er fram á veginn, til gjörða Guðs í framtíðinni. Meira máli í greiningu Thöne skiptir þó rýmið. Það einkennist í sálminum af andstæðum, ekki síst andstæðunum milli borgar og eyðimarkar sem aftur endurspegla andstæðar persónur í sálminum. Aðalpersónunni er stillt upp gegn óvinunum, en Guð er stoð hennar og stytta. Thöne telur að í niðurlagi sálmsins megi greina rödd sögumannsins sem kvenkyns, þar eð honum er líkt við sigraða borg, sem jafnan er persónugerð sem kona. A grundvelli kenninga Ulrike Bail, telur Thöne því að færa megi rök fyrir því að unnt sé að lesa sálminn sem bæn kynferðislega svívirtrar konu. 19 Samuel Terrien (1911-2002) var einn þeirra sálmafræðinga sem ætíð leitaðist við að aldursgreina sálmana. Hann lifði það ekki að sjá hið stóra skýringarit sitt við sálmana koma úr prentun (2003). I því áhrifamikla riti heldur hann því fram að Slm 55 kunni að eigi rætur sínar meðal útlaga frá Júda í Mesópótamíu. Nákvæmur aldur sé óviss, en áberandi samsvörun orða og hugsana sálmsins við Jeremía styðji þá tilgátu, sbr. óskin að flýja út í í óbyggðirnar (Slm 55.7-8 og Jer 9.1), burt frá borg ofbeldis og svika (Slm 55.10-12; Jer 6.6-7; 9.5), hin ógnvekjandi uppgötvun tvöfeldni vinarins (Slm 55.13-15 og Jer 10.19). H-J. Kraus (1918-2000) taldi líklegt að sálmurinn væri samsettur úr tveimur upphaflega sjálfstæðum hlutum, sem ættu það þó sameiginlegt að fyrrverandi vinur hefði gerst óvinur. Hann sagði aldursgreininguna erfiða en tók undir með W.O.E. Osterley um að „stíll og tungutak bendir til tímans eftir útlegð fremur en fyrir útlegð“. Sjá H-J. Kraus, Psalms 1-59. A Commentary, Minneapolis: Augsburg Publishing House, 1988, s. 520. 20 Thöne, Yvonne Sophie, „Stay in the Desert, Prowl in the City. A Narratological Analysis of Psalm 55“, í Mótun menningar / Shaping Culture. Afmælisrit til heiðurs Gunnlaugi A. Jónssyni sextugum, Reykjavík: Hið íslenska bókmenntafélag, 2012, s. 55-74.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.