Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2013, Side 155
við á. Sé hún hins vegar ekki til staðar, blasi einungis við hrun og niðurrif
tengsla. 27
Með hliðsjón af skrifum Beck-Friis má segja að skömmin sé siðferðileg
tilfmning sem beinist að persónu og tilfmningalegum tengslum annarra
persóna við hana. Forsenda skammarinnar er eigin ófullkomleiki. Boðskapur
hennar er: Ég hef gert eitthvað rangt eða hræðilegt. Þessa tilfmningu má
fela eða bæla og margir eru þeir, eins og dæmin hér að framan sýna, sem
gera það um lengri eða skemmri tíma. Seint og um síðir leitar þó skömmin
upp á yfirborðið og í framhaldi af því leitast margir við að fá uppreisn æru
vegna óréttmætrar skammar.
Fjölskylduráðgjafinn Kathryn Brohl er sammála Beck-Friis um að
skömmin sé á vissan hátt nauðsynleg, eðlileg og jákvæð áminning um hvað
sé rétt og hvað ekki. Neikvæðri skammartilfinningu líkir hún við gikk sem
magni tilfinninguna um að maður sé ófullkominn og einskis virði. Sem slík
sé skömmin vel þekkt meðal þeirra sem hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi og
ef þeir leiti sér ekki hjálpar sé hætta á skaðlegum afleiðingum fyrir sjálfs-
mynd og lífsskoðun þolenda.28 I svipaðan streng tekur guðfræðingurinn og
meðferðaraðilinn Theo van der Weele. Hann virðist þar að auki staðfesta orð
Jóns Gnarr hér að framan um áhrif skammarinnar á sjálfskilning en orðar
það á þá leið að skömmin brenni sig inn í vitundina og auki á einmana-
leikatilfinningu.29 Titill bókar Theos van der Weele, From Shame to Peace,
ber það með sér að hann vill neikvæða skammartilfinningu feiga. Til að
árétta neikvætt vald og áhrif skammarinnar í lífi einstaklinga vísar hann til
biblíulegs mannskilnings og tekur söguna úr aldingarðinum Eden sem dæmi
um hve djúpstæð skammartilfinningin sé í lífi fólks. Samkvæmt Fyrstu
Mósebók brutu Adam og Eva af sér gagnvart skaparanum þegar þau átu af
lífsins tré og upplifðu í kjölfarið djúpa skömm. Tilfinningar niðurlægingar
og höfnunar ólu af sér þau viðbrögð að vilja fela sig og hylja. Weele er
þeirrar skoðunar að allt ofbeldi gegn börnum, í hvaða mynd sem það birtist,
geti skaðað þau tilfinningalega og hindrað eðlilegan þroska þeirra. Líkt og
27 Sama heimild, bls. 41-42.
28 Kathryn Brohl og Joyce Case Potter, When Yonr Child has been Molested. A Parent 's Guide to
Healing and Recovery, San Francisco: Jossey-Bass, 2004, bls. 14.
29 Theo van der Weele, From Shame to Peace, Dordrecth: Importantia Publishing, 1995, bls. 93-94,
147.