Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2009, Side 9

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2009, Side 9
TMM 2009 · 1 9 Hjálmar Sveinsson Skipulag auðnarinnar Sá sem ekkert vissi um þróun þjóðfélagsins en stæði við horn Austur- strætis og Lækjargötu í Reykjavík í ársbyrjun 2009 og virti fyrir sér malar grunn sem þar er og leifar af gömlu timburverki, horfði svo yfir Lækjartorg í átt að hálfbyggðu stórhýsi út við sjóinn, sem minnti helst á svarta klettaeyju vegna umfangs síns, mannleysis, ljósleysis og fjarlægð- ar frá byggðinni, myndi tæplega draga þá ályktun að þetta auðnarlega umhverfi í miðri höfuðborg væri afrakstur eins mesta velmegunarskeiðs sögunnar. Honum gæti dottið í hug að efnahagskreppa hlyti að hafa ríkt í þessu landi í langan tíma og nú færi henni vonandi að ljúka. Ef hann gengi upp Hverfisgötu framhjá Þjóðmenningarhúsi og sjálfu Þjóðleikhúsinu og síðan auðum malarlóðum og fjölda niðurníddra húsa með neglt fyrir glugga en virti um leið fyrir sér háreista íbúðarturna, suma hálfbyggða, sem skaga upp úr gamalli, fíngerðri timburhúsabyggð milli Hverfisgötu og Skúlagötu myndi undrun hans sennilega aukast. Sendum hann svo upp að svokölluðum Hampiðjureit sem lítur út eins og stórtækt grjótnám í miðri byggð. Þaðan myndi hann sjá gríðarmik- inn opinn grunn milli Einholts og Þverholts en hvergi menn að verki og enga byggingarkrana. Svo færi hann inn að Höfðatorgsreit þar sem verið er að klæða 19 hæða turn gleri en bak við hann myrk auðn þar sem greinilega er búið að rífa niður allmörg hús en engar framkvæmdir í gangi. Þessi turn er augljóslega í engu samræmi við nálæga byggð og allra síst sögufrægt hús sem byggingarreiturinn er þó kenndur við. Þar að auki hefur komið í ljós að turninn skyggir á siglingarljós á turni Stýrimannaskólans. Setja þarf upp nýtt siglingarljós – á kostnað skatt- borgara væntanlega. Hver ræður hér ferðinni, hvaða hagsmunir og hvaða metnaður? spyr hinn ímyndaði gestur, nuddar sitt glögga auga og hefur með þeirri spurningu lokið hlutverki sínu. TMM_1_2009.indd 9 2/11/09 11:27:24 AM
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.