Tímarit Máls og menningar - 01.02.2009, Qupperneq 14
H j á l m a r S v e i n s s o n
14 TMM 2009 · 1
Höldum nú þangað sem við vorum komin áðan. Upp á Höfðatorgs-
reit. Þar hefur byggingarfélagið Eykt verið að byggja nýtt miðborgar-
hverfi sem er þegar farið að hafa veruleg áhrif á ásýnd borgarinnar, þótt
það sé aðeins hálfbyggt og verði kannski aldrei klárað. Reiturinn
afmarkast af Borgartúni og Skúlagötu, Höfðatúni og Skúlatúni. Þarna
var áður atvinnu- og skrifstofuhúsnæði og stórt plan sem tilheyrði
vélamiðstöð Reykjavíkur. Gráupplagt svæði til enduruppbyggingar. Og
þar sem borgin átti hluta reitsins var henni í lófa lagið að að leggja skýr-
ar skipulagslínur. Borgin fékk þau Valdísi Bjarnadóttur og Gunnar Inga
Ragnarsson, sem eru frumkvöðlar í hönnun vistgatna hér á landi, til að
gera svokallaða forsögn að deiliskipulagi og þar með uppbyggingu reits-
ins. Þau lögðu til að þarna risu fjögurra hæða hús alveg við götuna sem
mynduðu hefðbundið borgarrými. Þau vildu að tekið yrði mið af
byggðamynstri á svæðinu, meðal annars fallegum bogadregnum húsum
á svæðinu, Ræsishúsinu og Söginni.
Árið 2000 keypti byggingarfélagið Eykt reitinn og efndi til samkeppni
um uppbyggingu. Þremur árum síðar var sagt frá því í Morgunblaðinu
að Eykt ætlaði að byggja fjögurra hæða hús á þrjá vegu í kringum torg
sem væri svolítið stærra en Ingólfstorg og á einum stað kæmi 16 hæða
turn. Framkvæmdum á að vera lokið um mitt ár. Formaður Skipulags-
og byggingarnefndar Reykjavíkur var þá Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
R-lista. Svo líður og bíður. Fáeinum vikum eftir stjórnarskipti í borginni
vorið 2006, þegar meirihluti Framsóknar og Sjálfstæðisflokks tók við,
lagði Eykt fram tillögu um stórfellda breytingu á fyrirhuguðu Höfða-
torgi. Félagið hafði þá eignast allan reitinn upp að Skúlagötu og vildi nú
byggja þarna þrjá turna 19 hæða, 16 hæða og 14 hæða og að auki nokkur
7 og 9 hæða hús. Í tillögunni fólst ekki bara róttæk breyting á byggðinni,
heldur líka á ásýnd Reykjavíkur.
Eykt lét fljótlega búa til glæsilegt kynningarprógramm þar sem
Höfða torgsbyggðin var kynnt sem nýtt miðborgarsvæði með blandaðri
byggð með skrifstofum og íbúðum „fyrir kröfuharða“ og torg milli
háhýsanna sem minnti á ítalskt piazza. Og „gnægð bílastæða“.
Íbúum í nágrenninu, einkum í Túnunum sem höfðu fylgst náið með
þróun mála, brá þegar þeir fréttu af tillögu Eyktar. Þriðjudaginn 31.
október 2006 birtist í Morgunblaðinu lesendabréf Helgu Guðnadóttur
íbúa við Miðtún. Hún segist hafa verið á fundi þar sem kynntar voru
nýjar skipulagstillögur við Höfðatorg. „Ég fékk hálfgert taugaáfall,“
skrifar hún. „Ef þetta nýja skipulag verður að veruleika, þá er hægt að
líkja húsunum okkar við eldpýtnastokk við hliðina á stórum Cheerios-
pakka, svo yfirþyrmandi sé stærðarmunurinn.“ Hún spyr hver vilji
TMM_1_2009.indd 14 2/11/09 11:27:25 AM