Tímarit Máls og menningar - 01.02.2009, Síða 25
F r á F l u g u m ý r i t i l f j á r m á l a k r e p p u
TMM 2009 · 1 25
fyrir fæstu af því eru til heimildir og sumt rekst á við það sem vitað er
um Hallgrím svo ekki sé minnst á skáldskap hans.
Jónas Pálmason, sem ljóst og leynt er byggður á Jóni Guðmundssyni
lærða í Rökkurbýsnum Sjóns, er engu að síður einn á sviðinu eins og
Hallgrímur. En það er ólíku saman að jafna stíl þessara tveggja sagna.
Sjón skrifar þannig að lesandinn getur dvalið við hverja setningu, hverja
sviðsetningu, næstum óháð sögunni sem heild. Þess vegna gerir það lítið
til þótt fléttan sé veikasta hlið sögunnar. Rökkurbýsnir fylgja ekki aðal-
persónunni frá vöggu til grafar, heldur er brugðið upp svipmynd af
nokkrum árum í lífi Jónasar þótt lesandinn fræðist raunar líka um for-
tíð hans og framtíð. Sagan lýsir árum í lífi Jónasar sem samsvara dvöl
Jóns lærða í Bjarnarey á Breiðafirði og ferð hans til Kaupmannahafnar á
fund yfirvalda og lærdómsmannsins Ole Worm til að fá uppreist æru
eftir ranglátan útlegðardóm á Íslandi.
En atburðirnir eru í raun aukaatriði í Rökkurbýsnum. Sagan er fyrst
og fremst ferðalag um hugarheim sautjándu aldarinnar endurskapaðan
í skáldsögu. Söguskoðunin að baki Rökkurbýsnum er þannig þveröfug
við sögu Úlfars, í bók Sjóns birtist okkur heimsmynd endurreisnarinnar
fullsköpuð, Michel Foucault og greining hans á hugmyndakerfum vest-
rænnar hugmyndasögu er aldrei langt undan. Jón er auðvitað enginn
meðalmaður og ekki dæmigerður fyrir nokkurn skapaðan hlut fremur
en t.d Hallgrímur Pétursson, en snilld sögunnar felst ekki síst í því
hvernig Jón sem persóna er smíðaður inn í ramma aldarinnar þannig að
hann reynir á hann til hins ýtrasta með forvitni sinni og sjálfstæði, en
rýfur hann aldrei. Jónas hvílir heill og óskiptur í heimi þar sem allt á
sinn stað, smíðað af almáttugum skapara; hlutverk hans sem vísinda-
manns og skálds er að lesa heiminn eins og texta, ráða í umhverfi sitt,
náttúru og lífverur eins og tákn sem eiga sér örugga uppsprettu í
almættinu sjálfu.
Stíll sögunnar er frábær smíð. Hann er býsna langt frá skrúðmælgi og
lærdómsstíl sautjándu aldar, en þó ríkulega kryddaður með orðfæri ald-
arinnar og frávikum í setningabyggingu. Sagan tengist líka fyrri skáld-
sögum Sjóns; í upphafi er lýst tilurð mannsins á himnum og falli Lúsi-
fers, þannig bætist við söguna goðsögulegt plan sem tengist þeim
sagnaheimi sem lesendur þekkja úr Með titrandi tár og Augu þín sáu
mig.
TMM_1_2009.indd 25 2/11/09 11:27:26 AM