Tímarit Máls og menningar - 01.02.2009, Blaðsíða 36
36 TMM 2009 · 1
Katrín Jakobsdóttir
Engin glæpasagnakreppa
Íslenska glæpasagnaárið 2008
Undanfarinn áratugur hefur verið gósentíð glæpasagnaritunar hér á
landi en óhætt er að slá því föstu að árin 1997 og 1998 hafi markað nýtt
upphaf fyrir þessa bókmenntagrein; þá komu fram á sjónarsviðið marg-
ir þeirra höfunda sem síðan hafa látið mikið að sér kveða, eins og Arn-
aldur Indriðason, Árni Þórarinsson, Stella Blómkvist og Viktor Arnar
Ingólfsson1 sem reyndar hafði skrifað tvær glæpasögur tveimur áratug-
um fyrr en síðan tekið langt hlé.2
Mörgum hefur þótt nóg um og jafnvel heyrist því fleygt að vart sé
hægt að fá neitt útgefið núorðið nema glæpasögur. Þó verður ekki betur
séð en að bókaárið í ár hafi verið með blómlegasta móti á flestum svið-
um og virðist gróska í glæpasagnaritun ekki koma niður á annars konar
bókmenntum.
Árið 2008 komu að minnsta kosti út einar tíu sögur sem teljast til
bókmenntagreinarinnar. Þær eru Af mér er það helst að frétta… eftir
Gunnar Gunnarsson, Auðnin eftir Yrsu Sigurðardóttur, Hvar er systir
mín? eftir Eyrúnu Ýr Tryggvadóttur, Land tækifæranna eftir Ævar Örn
Jósepsson, Myrká eftir Arnald Indriðason, Ódáðahraun eftir Stefán Mána,
Sjöundi sonurinn eftir Árni Þórarinsson, Sólkross eftir Óttar M. norð-
fjörð, Vargurinn eftir Jón Hall Stefánsson og Váfugl eftir Hall Hallsson.
Að auki er fengist við glæpi og glæpabókmenntir í ýmsum öðrum
sögum en með öðrum hætti en í glæpasagnahefðinni; þannig fæst
Auður Jónsdóttir við glæpabókmenntir í sögunni Vetrarsól sem snýst
m.a. um vinsældir glæpasagna, ólíka glæpi og gruninn sem getur étið
fólk að innan. Konur eftir Steinar Braga snýst fyrst og fremst um glæpi
gegn konum. Þessar bækur eru þó fjarlægar sakamálasagnahefðinni og
ég ætla hér að fjalla um þær sögur sem eru ótvírætt innan hennar.
Tveir af þeim höfundum sem hér hafa verið nefndir gáfu út fyrstu
glæpasögu sína á árinu. Það eru Eyrún Ýr Tryggvadóttir sem skrifar
söguna Hvar er systir mín? og Hallur Hallsson með Váfugl.
TMM_1_2009.indd 36 2/11/09 11:27:27 AM