Tímarit Máls og menningar - 01.02.2009, Síða 38
K a t r í n J a k o b s d ó t t i r
38 TMM 2009 · 1
fyrir þennan byrjendabrag nýtur sagan hugmyndaauðgi og frásagnar-
gleði höfundar.
Hallur Hallsson, gamalkunnur fréttahaukur, sest á skáldfákinn og
sendir frá sér bókina Váfugl, einhvers konar dystópíu um framtíð Íslands
innan Evrópusambandsins sem nú hefur breyst í Sambandsríki Evrópu.
Framtíðarmyndin er svört; Hallur hefur þó ekki séð fyrir hrun íslenska
efnahagskerfisins en gerir því skóna að Ísland hafi fyrst hrunið með inn-
göngu í ESB. Bókin er óður til fullveldis og sjálfstæðis en er um leið
pólitísk spennusaga sem lýsir sjálfstæðisbaráttu Íslendinga á nýjan leik
undir forystu ungrar og glæsilegrar stjórnmálakonu, Júlíu Ingólfsdótt-
ur, sem nýtur liðsinnis tveggja gamalla hunda, Helga Þorlákssonar,
fræðimanns í íslenskum fræðum, og Hrafns Illugasonar, Krumma, sem
er sjómaður úr Eyjum.
Spillingin er mikil í Sambandsríkinu og ástand Íslands dapurlegt; það
er áhrifalítið jaðarsvæði sem hefur misst allt sitt besta fólk úr landi. Inn
í hina pólitísku spennusögu fléttar höfundurinn dökkri framtíðarsýn og
rifjar um leið upp Íslandssöguna og mannkynssöguna með sínum gler-
augum auk þess sem reglulega er vitnað í ættjarðarljóð af ýmsum toga,
sum hver frumsamin:
Þeir eru drengir eigi linir,
þeir eru flestir evrusynir,
og kannski sumir zarbornir.
Þeir eiga að halda oss í skefjum,
uppreisn til þess síður hefjum
og verði hver að vera kyrr. (96)
Skáldlegar stílæfingar hlaupa oft með höfundinn í gönur og stöðug
ljóðainnslög tefja framvinduna fremur en að styrkja söguna. Spennu-
sagan sjálf hverfur í sterkum áróðri fyrir heimsmynd þar sem Hannes
Hafstein og Morgunblaðið eru í öndvegi og Hallur virðist treysta lesend-
um fremur illa til að draga eigin ályktanir. Hins vegar er ég ekki í vafa
um að bókin á seinna meir eftir að verða merk heimild um Evrópusam-
bandsumræðuna og fellur í flokk með örfáum íslenskum skáldsögum
sömu tegundar.
Annar fréttamaður er Gunnar Gunnarsson en hann er einnig einn af
frumkvöðlum íslenskra nútímaglæpasagna þar sem hann skrifaði tvær
sögur um lögreglumanninn Margeir í kringum 1980.3 Það telst því til
nokkurra tíðinda að hann gefur nú út nýja glæpasögu; Af mér er það
helst að frétta … Hér er á ferð fyrstu persónu frásögn sem byrjar bratt.
Sögumaðurinn, Gilbert Benjamínsson, sem vinnur fyrir sér einkum
TMM_1_2009.indd 38 2/11/09 11:27:27 AM