Tímarit Máls og menningar - 01.02.2009, Síða 40
K a t r í n J a k o b s d ó t t i r
40 TMM 2009 · 1
sérhæfir sig í norrænni goðafræði) kölluð til aðstoðar af lögreglu eftir að
brotist hefur verið inn á heimili þekkts en umdeilds fornleifafræðings,
þjónustustúlka hans myrt og skrifstofunni breytt í heiðinn blótstað.
Embla er unnusta Adams Swifts sem var aðalpersóna í Hnífi Abrahams
og þannig virðist höfundur íhuga að efna til bókaflokks með þessum
geðþekku aðalpersónum sem hvort um sig ber nafn áa mannkyns í ólík-
um trúarbrögðum. Adam fékk á sínum tíma kristilega gátu til að leysa,
Embla leysir nú heiðna gátu.
Hins vegar eru persónurnar ekki drifkrafturinn í Sólkrossi. Annars
vegar er það hröð og jafnvel ofhlaðin atburðarás þar sem fjöldi fólks
lendir í eltingarleik á Suðurlandsundirlendinu þar sem allir eru á eftir
þeim sem ber ábyrgð á verknaðinum; lögregla, Embla og Adam og fjöl-
miðlamenn. Hins vegar er það dulúðin sem sveipar allt málið en höf-
undur leitar í smiðju norrænna fræða og kenninga Einars Pálssonar sem
Óttar nýtir sem undirstöðu fyrir glæpamálið en það virðist tengjast svo-
nefndum sólkrossum sem hægt er að teikna upp út frá stöðum á Suður-
landi og tengjast helgum blettum:
Embla kinkaði kolli. „Rangárhringurinn nær yfir geysistórt svæði – svo gott
sem sama svæði og Ketill hængur nam samkvæmt Landnámu – og innlimar
fimm höfuðpunkta. Skálholt í norðvestri, Stöng í norðaustri, Goðastein í suð-
austri, Bergþórshvol í suðvestri og Steinkross í nákvæmri miðju sólkrossins.“
Hún dró andann djúpt og leit beint fram fyrir sig. „Baldur sagði að sólkrossinn
væri mældur út frá Bergþórshvoli, suðvesturpunktinum, þar sem sólin er lægst á
himni.“ Hún glotti við tönn. „Bruninn á Bergþórshvoli í Njálu fær því algerlega
nýja merkingu þegar maður setur bæinn í samhengi við sólkrossinn.“ (134)
Óttar M. norðfjörð er um margt snjall höfundur. Honum hefur þannig
tekist að innlima menningarlegar glæpasögur rækilega í íslenskra
glæpasagnahefð með því að semja íslenskar sögur um alls kyns dulmögn
sögulegra og trúarlegra menningarminja. Sólkross er á köflum fantagóð
spennusaga og höfundur skemmtir sér einnig við að teikna upp skopleg-
ar persónur eins og fjölmiðlanáunga tvo, Orra og Valgarð, sem hyggjast
„skúbba“ fyrir Stöð 2. Hins vegar eru þeir ansi ýktir eins og margt annað
í sögunni og hætt er við að hún skilji lítið eftir. Spurningin er hvort ekki
mætti sameina þann kraft og hugmyndaauðgi sem Óttar sýnir hér dýpri
persónusköpun og samfélagslýsingum.
Stefán Máni sló í gegn með síðustu sögu sinni, Skipinu (2006) en þar
var á ferð hrollvekja með goðsagnakenndu yfirbragði. Árið 2008 sendi
hann frá sér nýja skáldsögu, Ódáðahraun, en efniviðinn sækir hann
bæði í íslenska undirheima og norræna goðafræði. Aðalpersónan er
TMM_1_2009.indd 40 2/11/09 11:27:27 AM