Tímarit Máls og menningar - 01.02.2009, Blaðsíða 46
K a t r í n J a k o b s d ó t t i r
46 TMM 2009 · 1
– Uppáhaldskryddið þitt? spurði Sigurður Óli.
– Já, sagði Elínborg. En það er ekki eitt krydd heldur kryddblanda. Indversk.
Þetta er eins og … þetta minnir mig á tandoori. Ég held að það sé lykt af tandoori
í sjalinu. (24)
Hér er Elínborg á heimavelli enda hefur ítrekað komið fram í fyrri
bókum að hún er stöðugt að maka kjúklinga út í þessu rauða gumsi og
hér er farið í langar lýsingar á tandoori-tilbúningi Elínborgar:
Hún átti tvær gerðir af indverskum tandoori-leirpottum sem réttirnir voru
steiktir í […] Kryddlögurinn skipti hins vegar mestu fyrir bragðlaukana. Elín-
borg setti margvísleg krydd í ákveðnum hlutföllum eftir smekk út í hreint jóg-
úrt: ef hún vildi hafa réttinn rauðleitan notaði hún mulin annattófræ en saffran
ef hún vildi hafa hann gulan. Yfirleitt lék hún sér með blöndu af cayenne-pip-
ar, kóríander, engifer og hvítlauk auk hins indverska garam masala sem hún
blandaði úr ristuðum eða möluðum kardimommum, kúmíni, kanil, hvítlauk
og svörtum pipar með svolitlu múskati. Hún hafði þreifað sig áfram með
íslenskar kryddjurtir í blönduna með góðum árangri, notaði til dæmis blóðberg,
hvannarrót, túnfífilsblöð og skessujurt. Hún nuddaði kjötið, oftast kjúkling eða
svínakjöt, upp úr leginum og lét liggja í nokkrar klukkustundir áður en hún tók
fram leirpottinn. (43)
Hins vegar er það annar þefur sem leiðir Elínborgu að lokum á rétta
sporið, lítt tengdur mat, en það má segja að hún sé sporhundurinn sem
þefar sig áfram í bókstaflegri merkingu þess orðs og beitir þannig ekki
endilega sömu rannsóknaraðferðum og félagar hennar í lögreglunni.
Eins og í fyrri bókum Arnaldar er í Myrká fjallað um lífsgildi, gildi
fjölskyldunnar og alla þá erfiðleika sem koma upp í fjölskyldum. Þó að
erfið samskipti foreldra og barna megi finna í fjölskyldum bæði Elín-
borgar og Erlendar er sjónarhornið nýtt og Elínborg reynir að leysa
málin á annan hátt en Erlendur. Hún stendur fyrir hefðbundin kvenleg
gildi; hina kvenlegu sköpun sem felst í því að búa til mat úr hráefni og
gefa sínum nánustu sem tákn um ást:
Í matargerðinni fann hún útrás fyrir sköpunarþrá sem fólst í því að umbreyta
hráefninu og gefa því annað eðli, bragð, áferð, ilm. Hún leit á þrjú stig mat-
argerðarinnar, undirbúninginn, matseldina og borðhaldið, sem eins konar upp-
skrift að lífinu. (238)
Á meðan Elínborg þefar uppi morðingja og reynir að halda fjölskyld-
unni saman við matarborðið er Erlendur hvergi nærri. Síðustu bók Arn-
aldar, Harðskafa (2007), lauk með því að Erlendur hverfur í kalda þoku
TMM_1_2009.indd 46 2/11/09 11:27:27 AM