Tímarit Máls og menningar - 01.02.2009, Side 50
50 TMM 2009 · 1
Lisa Hopkins
Hamlet reykir Prins:
101 Reykjavík á síðu og tjaldi
Skáldsaga Hallgríms Helgasonar 101 Reykjavík, sem kom fyrst út árið
1996, var kvikmynduð af leikstjóranum Baltasar Kormáki árið 2000. Að
vissum skilningi eru bæði skáldsagan og kvikmyndin endursköpun
annarra verka því að kvikmyndin er vitaskuld byggð á skáldsögunni en
skáldsagan vísar á hinn bóginn aftur og aftur til verka Halldórs Laxness,
eins og hér verður fjallað um, en dregur einnig, og jafnvel með ennþá
ákveðnari hætti, dám af Hamlet Shakespeares. Enda er einn aðalbrand-
arinn í henni sá að hetja hennar, hinn atvinnulausi 33 ára gamli Hlynur
Björn Hafsteinsson, er ótrúlega líkur Hamlet í skapferli og aðstæðum
sínum en jafnframt svo sjálfhverfur að hann fattar það ekki, en einmitt
það er mjög í anda Hamlets, eins og glöggt kemur fram í bókinni sjálfri.
Þess í stað lendir hann í fjölmörgum uppákomum sem minna á Hamlet
án þess að hugsa um annað en hvernig þær koma við hann sjálfan, eða
leiða nokkru sinni hugann að því að aðrir komi þar einnig við sögu og
„sjálf“ hans sé í reynd tilbúið og skilyrt af ytri öflum og fordæmum. Í
lok bókarinnar er þó ljóst að hamlethlutverkið er ekki til marks um ill
örlög, eins og hjá Tsjekhov, heldur í reynd ástand sem hægt er að vaxa
frá án þess að bíða tjón af, þar sem Hlynur Björn fær loksins áhuga á
einhverri annarri manneskju en sjálfum sér, þ.e. kornungum syni/bróð-
ur sínum – barninu sem ástkona lesbískrar móður hans elur og er trú-
lega afkvæmi hans sjálfs.
Í kvikmyndaendurgerð Baltasars Kormáks á skáldsögu Hallgríms er
hamletpæling bókarinnar að miklu leyti þögguð niður. Baltasar virðist
einnig gera ráð fyrir að Hlynur Björn lagi sig mun betur að samfélaginu
í lokin en í bókinni því að í myndinni tengist hann ekki aðeins öðrum
þegnum þess heldur starfar einnig í þágu þess. Að vísu er heldur ólíklegt
að okkur hinum finnist starf hans sem stöðumælavörður vera upphaf og
endir allra hluta, þótt Hlynur virðist láta sér það vel líka, og með því að
TMM_1_2009.indd 50 2/11/09 11:27:28 AM