Tímarit Máls og menningar - 01.02.2009, Side 54
L i s a H o p k i n s
54 TMM 2009 · 1
Íslendinga almennt er nafn föðurins ríkur þáttur í sjálfsmyndinni, en
Hlynur hefur aðeins fest móðurætt sína á minnið og það kemur við
kjarnann í sjálfsskynjun Íslendinga.
Í sögunni er einnig endurómur af öðrum persónum eða minnum úr
Hamlet og sérhver persóna sem hefur mótast af því verki (eða persónu-
tvennd í tilfelli Rósa og Gulla) er notuð til að skoða nýja hlið á sjálfs-
mynd Íslendinga. Hófí, dóttir tannlæknis, er Ófelíupersónan sem Hlyn-
ur segir við „Þú átt eftir að stynja áður en ég linast upp“ (34) og hún á
bróður sem er kallaður Lerti. Þótt Hlynur fordæmi sjálfan sig fremur en
hana þegar hann segir „Karlmaður þitt nafn er Þráin“ (235) svipar sam-
tali Hlyns við pabba Hófíar mjög til samræðu Hamlets við Póloníus, þar
á meðal „Orð, orð, orð“ og „Þetta er eitthvað algjört bull. Það er hérna
kafli um tannlækna“ (225), og það er líka í tengslum við föður Hófíar
sem Hlynur hugsar um höfuðkúpur í anda Hamlets: Tannlæknar „eiga
eina handverkið í hauskúpunni … Allar þessar fyllingar sem nú liggja á
kistubotninum til ótyggjandi einskis“ (165). Hófí knýr Hlyn til að velta
fyrir sér fegurð og snyrtivörum ekki ósvipað og Hamlet:
Hvað er fegurð? Það þarf að pensla yfir hana svo hún sé eitthvað. Hvað er það?
Bara eitthvað fiff. Og allt í klessu ef tárin tínast fram. Púðrið blotnar. Heilu
hjónaböndin – með tilheyrandi uppkomnum börnum og ungviði, heilu ætt-
unum og öllu því grilli sem þeim fylgir, jeppum og skíðagræjum, garðskálum
og nuddpottum, vélsleðum, skírnarkjólum og rándýrum kistulagningum – allt
þetta er reist á, og hangir á einhverjum tveimur grömmum af púðri og örðu af
varalit, daufum daufum augnskugga. (64–5)
Megininntakið í þessu minnir að sumu leyti á fordæmingu Hamlets á
Ófelíu en er ólíkt henni að öðru leyti því að það sem hér býr að baki eru
ekki áhyggjur af konum heldur áhyggjur af Íslandi og þeirri spurningu
hvort landsmenn hafi beðið tjón á sálu sinni við að breytast úr einu
fátækasta ríki í heimi í eitt af þeim ríkustu á 20. öld.
Ekki vantar heldur Rósinkrans og Gullinstjörnu í skáldsögu Hall-
gríms. Það er ekki nóg með að hin nýja kærasta föður Hlyns sé skemmt-
anastjóri á Kaffi Rósinkrans (87) því að:
Rósi og Gulli koma og setjast. Þeir eru góðir. Tveir topphommar. Alltaf saman.
Lengsta samband sem ég veit um. Gulli er „stjarnan“, Rósi er „kransinn“. Eða
það segja þeir. Ég hef ekki glæra hugmynd um hvað þeir eiga við með því. (52)
Rósi og Gulli segjast síðan hafa verið á leiksýningu: „Það er allt í þessu.
Það er smá Guðbergur í þessu, smá Hamlet, smá áramótaskaup, Tarant-
TMM_1_2009.indd 54 2/11/09 11:27:28 AM