Tímarit Máls og menningar - 01.02.2009, Page 65
TMM 2009 · 1 65
Árni Óskarsson
Upprisa amlóðans
Rætt við Hallgrím Helgason
Ef litið er um öxl virðist svo sem skáldsaga Hallgríms Helgasonar, 101
Reykjavík, hafi verið of erfiður biti að kyngja fyrir íslenska lesendur
þegar hún kom fyrst út árið 1996. Viðbrögð gagnrýnenda við einræðum
og auðnuleysisráfi aðalpersónunnar Hlyns Björns í þessari óvenjulegu
sögu voru blendin, jafnvel þrungin reiði. Bókin þótti yfirdrifin og van-
stillt. Þannig skrifaði Rúnar Helgi Vignisson í DV: „Hallgrímur yfir-
trompar svo rækilega að í merkingarleysu stefnir“ (29.11.1996). „[H]ver
síða er eins og þrír tímar af látlausu stjörnustríði,“ skrifaði Eiríkur Guð-
mundsson í Morgunblaðið. Lóa Pind Aldísardóttir áleit sömuleiðis mik-
ils óhófs gæta hjá höfundi í dómi í Tímanum og hélt því fram að hann
kynni ekki að nota del-takkann á lyklaborðinu (28.11.1996). Og aðal-
persóna sögunnar fór illa fyrir brjóstið á mönnum, eins og fram kemur
í dómi Illuga Jökulssonar í Helgarpóstinum: „Hlynur Björn er […] sér-
lega leiðinlegur maður, fyrir utan að vera skíthæll og dýraplagari, auk
þess sem hann hefur kvenfyrirlitningu upp í æðra veldi“ (28.11.1996).
Eiríki Guðmundssyni þótti einnig í fyrrnefndum dómi „kynlífsþrá-
hyggja Hlyns [víða keyra] um þverbak“. Athyglisvert er að aðeins einn
ritdómari, Þórhallur Eyþórsson í Alþýðublaðinu, gat um Hamlet-teng-
inguna í verkinu sem þó verður að telja einn af burðarásum þess. Ekki
virðist bókin heldur hafa fallið í kramið hjá almenningi því að hún seld-
ist í fremur litlu upplagi. Það er því kannski ekki að undra þótt höfund-
ur hafi álitið verk sitt „andvana fætt“ þar til upprisa þess hófst þegar
bókin var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna norðurlandaráðs árið 1999
og samnefnd kvikmynd Baltasars Kormáks var frumsýnd árið 2000. Sú
kvikmynd vakti athygli víða um heim og þá var farið að falast eftir
skáldsögu Hallgríms til þýðingar. nú hefur hún verið gefin út á 13
tungumálum og hefur jafnvel átt sinn þátt í að gera miðborg Reykjavík-
ur að spennandi stað í augum ferðamanna. Í tilefni af því að fjallað er
ítarlega um 101 Reykjavík í þýddri grein hér í heftinu var Hallgrímur
TMM_1_2009.indd 65 2/11/09 11:27:29 AM