Tímarit Máls og menningar - 01.02.2009, Page 122
122 TMM 2009 · 1
Örn Ólafsson
Frönskum spekingum hallmælt
Bréf til Maríu eftir Einar Má Jónsson (hér EMJ) vakti mikla athygli og
maklega strax þegar hún kom út árið 2007. Bókin er metnaðarfull, tekst
á við margskonar öfugþróun alþjóðlega undanfarna áratugi og setur í
heildarkerfi. Þar er fjallað um sókn nýfrjálshyggju gegn velferð, um ein-
földun í kennslumálum, húsavernd, mengun og margt fleira sem mikið
hefur verið í umræðu um langt skeið. Bókin er aðdáanlega vel skrifuð og
af mikilli yfirsýn. Hún hefði þó orðið stórum notadrýgri, hefði hún verið
prýdd nafnaskrá, að ekki sé talað um atriðisorðaskrá. Þar er ekki einu
sinni efnisyfirlit, og er þó víða komið við á 350 bls. Fæstir munu nenna
að lesa bókina alla aftur til að rifja upp eitthvert eitt atriði eða tvö.
Mikið hefur verið um þessa bók fjallað, og finnst mér merkilegust
umfjöllun Hjörleifs Finnssonar og davíðs Kristinssonar í Huga, tímariti
heimspekinga, 2007. Þeir gagnrýna EMJ fyrir hughyggju, hann láti sem
öll þróun stafi af hugmyndaboðun, en sinni þar ekki þjóðfélagsbreyt-
ingum. Eins og fleiri telja þeir að hann gefi alltof einhliða jákvæða mynd
að því velferðarsamfélagi sem ríkti fyrir 20–30 árum, og nýfrjálshyggja
hefur ráðist gegn undanfarna áratugi. Einnig átelja þeir félagar yfir-
borðslega umfjöllun bókarinnar um ýmsa franska spekinga sem komið
hafa fram undanfarna hálfa öld. Hins vegar fjalla þeir Hjörleifur og
davíð lítið um kenningar þessara spekinga en þeim mun meira um
jákvæðar viðtökur þeirra, rekja hvernig ýmsir merkismenn hafi metið
þá miklu meira en EMJ gerir. Í þessari grein þeirra eru dregin saman
meginatriði annarrar umfjöllunar, og læt ég nægja að vísa þangað.
Meginatriði Bréfs til Maríu er að rekja þá öfugþróun sem lýsir sér í
afnámi velferðarkerfisins, hnignun skólakerfis og almennrar menntun-
ar, og alþjóðavæðingu nýfrjálshyggju. Þótt undirritaður hafi mikla
samúð með þeim málflutningi EMJ, get ég ekki orða bundist um sumt
annað í ritinu.
Það er sérstakt íhugunarefni hversvegna Kommúnistaflokkur Frakk-
TMM_1_2009.indd 122 2/11/09 11:27:32 AM