Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1958, Qupperneq 120
1958
— 118
Um heyrnarlausa:
Akranes. Þeir sömu og áður.
Blönduós. Hefur fækkað, því að
annað gamahnennið, sem var stein-
dauft, dó á árinu.
Vestmannaeyja. Heyrnarlausir skráð-
ir 17 eins og áður, og nota 10 þeirra
heyrnartæki með góðum árangri. Allt-
af ber nokkuð á feimni kvenþjóðar-
innar við heyrnartækin, jafnvel mið-
aldra kvenna.
Um blinda:
Akranes. Blindir eru einum færri en
árið áður.
Kleppjárnsreijkja. Tveir hinna blindu
dóu á árinu.
Búðardals. Gamall maður með glau-
coma á báðum augum nálgast það að
geta kallast blindur.
Blönduós. Þrjú gamalmenni á tiræð-
isaldri, öll steinblind, dóu á árinu, en
enginn bættist við.
Um a t v i n n u s j ú k a :
Akranes. Atvinnusjúkir engir skráðir.
Bnðardals. 3 menn verulega hey-
mæðnir.
Blönduós. Með atvinnusjúkdóm tel
ég ekki með vissu nema einn gamlan
bónda, sem hefur beymæði og emphy-
sema á svo báu stigi, að hann er fast-
ur vistmaður á spítalanum.
Vestmannaei/ja. í víðtækari merk-
ingu sjúkdómsheitisins má liér vafa-
laust heimfæra tvo karlmenn.
Um á f e n g i s s j ú k I i n g a :
Akranes. Áfengissjúklinga hef ég
skráð 4, og er sennilega vantalið, en
mér finnst oft álitamál, hverja beri að
telja þar til.
Blönduós. Tveir innanhéraðsmenn
h.afa verið lagðir inn á spítalann vegna
bráðrar áfengisnautnar, og einn utan-
héraðsmaður var hafður þar 2—3
mánuði til lækninga, að þvi er virðist
með góðum árangri.
Eskifj. Komið gæti til mála að skrá
fleiri áfeng'issjúklinga en gert er, en
það verður látið liggja milli hluta fyrst
um sinn.
Vestmannaeyja. Síðan siðast var gert
rækilegt yfirlit fyrir tveimur árum,
hefur ástandið í áfengismálunum batn-
að, því að nú eru aðeins skráðir 37
menn í 2.—4. flokki, 8:4. stigs, 10:3.
stigs og 19:2. stigs áfengisneytendur.
Hafnarfj. Drykkjumenn eru hér
nokkrir, sem kalla má ofdrykkjumenn.
Sumir þeirra hafa fengið nokkra við-
reisn með hjálp Bláa bandsins, dvalizt
þar um tíma eða notið siðferðilegs
styrks frá samtökunum.
Um deyfilyfjaneytendur:
Akranes. Engir skráðir.
Blönduós. Engin mun vera hér
deyfilyfjanautn, ef frá er tekin all-
mikil notkun svefnlyfja lijá einuni
rosknum bónda.
Vestmannaeyja. Mun nú vera komin
í það lágmark hér, sem verður koni-
izt á næstunni. Aðeins ein kona er
skráð deyfilyfjaneytandi, bæklaður
sjúklingur.
Hafnarfj. Deyfilyfjaneytendur eru
ekki mér vitanlega aðrir en þeir, sem
einhverra sjúkdóma vegna hafa komizt
á að éta alls konar töflur og eiga svo
erfitt með að vera án þeirra.
VII. Ymis heilbrigðismál.
1. Heilbrigðislöggjöf 1958.
Á árinu voru sett þessi lög, er til
heilbrigðislöggjafar geta talizt:
1. Auglýsing nr. 5 7. febrúar, um
staðfesting forseta íslands á breyt-
ingu á reglugerð nr. 47/1942, sbr.
reglugerð nr. 83/1951, fyrir Há-
skóla íslands.
2. Auglýsing nr. 1110. marz, um full-
gildingu á alþjóðasamþykkt um
nauðungarvinnu eða skylduvinnu.
3. Auglýsing nr. 20 10. marz, um full-
gildingu á alþjóðasamþykkt varð-
andi atvinnuleysi.