Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1958, Blaðsíða 98
1958
— 96 —
tans: 2 af 3 sjúklingum með þenna
sjúkdóm dóu úr cancer. Neuritis 3.
Reykhóla. Epilepsia 1. Insomnia:
1 mjög erfitt tilfelli. Migraine: 3
sjúklingar. Liður sæmilega, ef þeir
hafa Cafergot. Neurosis 1.
Flateyjar. Apoplexia cerebri: Báðir
bræðurnir, sem getið er um í siðustu
ársskýrslu, dóu á árinu, og enginn
bætzt við síðan. Arteriosclerosis: 1
háöldruð kona með coronarsclerosis.
Önnur um sjötugt með arteriosclerosis
universalis, ásamt lítils háttar coronar-
sclerosis. Neurastlienia algeng.
Þingeyrar. Epilepsia 2, migraine 1,
mb. mentalis 3.
Suöureyrar. Epilepsia: Drengir, 6
og 10 ára, nota phenemal.
Blönduós. Epilepsia hafa 4 konur,
óskyldar. Ein þeirra verður að nota
lvf að staðaldri i allstórum stíl, en
hinar með köflum. Paralysis agitans:
Sjötugur maður úr Skagafirði lá á
spitalanum um tíma, og innanhéraðs-
maður á líku reki fór að fá einkenni
um lamariðu, en hans er getið í sið-
ustu ársskýrslu og þess með, að hann
varð illa úti eftir inflúenzu, enda
leiddu afleiðingar hennar hann til
dauða snemma á árinu. Sclerosis dis-
seminata: Undanfarið hefur verið talin
með sjúkdóm þennan 33 ára gömul
kona, sem fyrst er getið í ársskýrslu
minni 1955, og var þetta sjúkdóms-
greining lyfjadeildar Landsspitalans.
Konan er á spítalanum, skilst varla og
er algerlega ósjálfbjarga. Bóndi sá, er
ég gat um í siðustu skýrslu og taldi
iíklegt, að liefði Hortons cephalalgia,
hefur bæði verið á Landsspitalanum
og hjá próf. Busch i Kaupmannahöfn,
og var á báðum stöðum talið líklegt,
að þetta stafaði af sclerosis dissemi-
nata, en sjúkdómsgreiningin þó engan
veginn örugg. Hann hefur ekki eins
slæmar kvalir og áður, en ástand að
öðru leyti er heldur versnandi. Symp-
tomata post varicectomiam intracra-
nialem: Ung kona af Blönduósi, sem
skorin var í Kaupmannahöfn vegna
æðalinúta neðan á heila og ég hef áð-
ur getið, hefur ekki getað tekið upp
sín fyrri störf vegna nokkurra lamana
og höfuðverkjar, en þó ef til vill frek-
ast vegna andlegrar inertia, og breyt-
ist það lítið til batnaðar.
Ólafsfi. Apoplexia 3.
Grenivíkur. Apoplexia cerebri:
Rúmlega fimmtugur maður fékk smá-
heilablæðingu, en jafnaði sig furðu
fljótt. Neurasthenia: Nokkur brögð
eru að taugaslappleika, sérstaklega
kvenna.
Breiðumýrar. Epilepsia: 2 nýir
sjúklingar, sem áður var vitað um,
fengu status epilepticus.
Raufarhafnar. Neurosis algengur
kvilli hér sem annars staðar, ef til
vill þó algengari, t. d. hafa margir
héðan leitað sér andalækninga hjá
Einari nokkrum andalækni á Einars-
stöðum í Suður-Þingeyjarsýslu. Hann
hefur um eða yfir 20 framliðna kol-
lega i þjónustu sinni, bæði látna hér-
aðslækna og sérfræðinga, og næst
stundum svo gott samband, að sjúk-
lingarnir þekkja handtök ákveðinna
lækna, sem stunduðu þá áður fyrr.
Það er verst, hve langt er að fara inn
að Einarsstöðum fyrir þá, sem þurfa
að fara oft. Þó bætir það nokkuð úr,
að stundum halda læknarnir áfram að
vitja sjúklinganna hér austur á Raufar-
höfn, þegar sjúklingurinn er búinn að
fara nokkrar ferðir í Einarsstaði.
Einu sinni hef ég komið hér i vitjun
til sjúklings, er andalæknir var þar
fyrir; var hann að sprauta sjúkling-
inn, þegar ég kom, og beið ég að sjálf-
sögðu með mína lækningu, þar til
hann var búinn með sína.
Þórshafnar. Arteriosclerosis cerebri
2. Neurasthenia algeng hér, og er „Ak-
ureyrarveikinni“ kennt um, en farahl-
urinn gekk hér veturinn 1955—50.
Vopnafi. Neurasthenia 4, psychosis
manio-depressiva 2, cancrophobia 3,
myelitidis seq. 1, radiculitis 1.
Seyðisfi. Chorea chr. hereditaria:
Sami sjúklingur og áður. Migraine: 2
sjúklingar, karl og' kona, 60—70 ára.
Paralysis agitans: Kona um fimmtugt,
gengið með sjúkdóminn í mörg ár,
fer versnandi.
Ares. Apoplexia cerebri: Banamein
tveggja gamalmenna í héraðinu. Mor-
bus Meniére 2, paralysis facialis 1-