Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1958, Síða 128
1958
— 126 —
Áfengisvarnir.
Á deildina komu alls 302 manns,
þar af 114 (109 karlar og 5 konur)
í fyrsta sinn. Alls kom þetta fólk 7151
sinnum. Af nýjum sjúklingum voru 13
(karlar) búsettir utan Reykjavíkur.
Læknar deildarinnar fóru í 65 vitjanir
og hjúkrunarkona í 12 vitjanir á heim-
ili drykkjusjúklinga. 15 drykkjusjúk-
lingum var útveguð sjúkrahúsvist. Sál-
fræðingur deildarinnar tók 47 sjúk-
linga til rannsóknar og meðferðar (44
karla og 3 konur). Alls hafa 1189
manns leitað til deildarinnar, frá þvi
að hún tók til starfa árið 1952. Af
þeim hafa 29 látizt, svo að deildinni
sé kunnugt um. Voru flestir þeirra
innan við fimmtugt. Um dánarorsakir
þeirra er þetta að segja: 10 dóu snögg-
lega, ýmist drukknir eða ódrukknir,
7 frömdu sjálfsmorð, 3 dóu af slys-
förum, 2 létust af eitrun (kompás-
spritt, áfengi), 1 lézt eftir skurðað-
gerð á spítala, 1 týndist, 1 dó úr heila-
blæðingu, 1 dó úr krabbameini, ó-
kunnugt um dánarorsök 3.
2. Heilsuverndarstöð ísafjarðar.
Berklavarnir.
Á stöðinni voru rannsakaðir vegna
berldaveiki 394 manns. Með virka
berkla reyndust 3, eða 0,76% rann-
sakaðra.
3. Heilsuverndarstöð Siglufjarðar.
Berklavarnir.
Á stöðinni voru rannsakaðir 249
manns vegna berklaveiki. Enginn
liafði virka berkla.
4. Heilsuverndarstöð Akureyrar.
Stöðin starfaði á sama hátt og árið
áður að berklavörnum, eftirliti og
ráðleggingum fyrir þungaðar konur,
svo og ónæmisaðgerðum.
Berklavarnir.
Á stöðinni voru rannsakaðir 1258
manns vegna berklaveiki. Með virka
berkla voru 34, eða 2,70% rannsak-
aðra.
5. Heilsuverndarstöð Seyðisfjarðar.
Berklavarnir.
Á stöðinni voru rannsakaðir 73
manns vegna berklaveilci. Með virka
berkla voru 4, eða 5,48% rannsak-
aðra.
6. Heilsuverndarstöð Vestmanna-
eyja.
Á heilsuverndarstöðinni var eins og
áður starfað að berklavörnum og ung-
og smábarnaeftirliti, svo og leiðbeint
barnshafandi konum.
Berklavarnir.
Stöðina sóttu 2444 manns. Fjöldi
rannsókna 2764. 6 þeirra, eða 0,2%,
reyndust hafa virka berklaveiki, þar
af 5 með lungnaberkla og einn þeirra
smitandi. Sérstakar rannsóknir:
Skyggningar 859, sýklarannsóknir án
ræktunar 5, sýklaræktun 4, blóðsökk
19, berklapróf 1874, 2 konum vísað á
hæli. Hjúkrunarkona fór í 34 vitjanir
á heimili til berklaeftirlits.
U ngbarnavernd.
Á deildinni voru skoðanir alls 914
á 472 börnum. Þar af komu 166 börn
til skoðunar í fyrsta sinn, en 306, sem
komið höfðu áður. Frumbólusetning
fór fram á 187 börnnm, mænusóttar-
bólusetning á 315 börnum, barna-
veiki-, kikhósta- og stifkrampabólu-
setning á 356 börnum 615 sinnum.
Helztu kvillar þessir: Offita 5, afrifur
7, eczema 3, blóðleysi 3, kafmæði 1,
langvinn berkjubólga 1, haemangioma
3, vatnshaull 1, naflatog 5, mongoloid
1, kvef 1, kverkabólga 1, kossageit 2,
augnbólga 2, flatfótur 4, hægðatregða
1, taugaveiklun 1, tunguhaft 1, létt
beinkröm 10. Meðalbrjóstmötunartími
barnanna var 1,7 mánuðir og fer
þannig heldur lækkandi, því að áður
hafði hann oftast verið 1,9 mánuðir.
Ljósböð fengu 176 börn, samtals 2060
ljósastundir. Farið var i 442 vitjanir
til ungbarna á 163 heimili.
S júkrasamlög.
Samkvæmt skýrslum Trygginga-
stofnunar ríkisins voru í árslok 224
sjúkrasamlög i landinu með samtals