Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1958, Page 138
1958
— 136 —
en unnið var að stækkun og breyting-
um á mörgum hinna eldri húsa. Með
nýrri og betri húsakynnum eykst
hrifnaður ár frá ári. Enn eru þó til
heimili, sem ekkert salerni hafa. Utan-
húsmenning er á lágu stigi.
Reykhóla. Fer batnandi. Þó eru
nokkrir bæir svo illa húsaðir, að ó-
gerningur er að stunda þar nokkurt
hreinlæti.
Flateijrar. Almennt hreinlæti er hér
enn á lágu stigi. Töluvert ber á því,
að fólk hafi kindur hér í þorpinu.
Hundar eru ekki heldur óalgengir. í
iiaust fannst netjusullur í þremur
kindum. Hundar voru hreinsaðir ný-
lega, en það mun ekki hafa verið gert
undanfarin 2—3 ár. Rottuplága er hér
mikil, en í undirbúningi er allsherjar
rottueyðing, Unnið er að nýrri skolp-
veitu, en á því er mjög brýn nauð-
syn.
Suðureyrar. Sorphreinsun mjög á-
bótavant, og vegna þess að oliukynd-
ing er komin í flest hús, fellst til
langtum meira af úrgangi en áður var,
þegar allt brennanlegt var brennt í
kolamiðstöðvum. Fer hver og einn
með sinn rusladall fram í fjöru, og er
hún oft öll þakin úrgangi. Verra var
þó, er skolpleiðslur frá nokkrum liús-
um náðu alls ekki flæðarmáli um há-
flóð, og gerðist af þvi hinn versti ó-
þrifnaður. Var þetta þó lagfært í
fyrrahaust, og eru þessi hús komin
í samband við aðalskolpræsakerfi
þorpsins, sem liggur í djúpt vatn. Þá
spillir það mjög almennum þrifnaði,
að vatnsveita þorpsins er í hinu
megnasta ólagi, svo að í flestum hús-
um er lítið sem ekkert um vatn í
þurrkum á sumrin og í frostum á vet-
urna.
Bolungarvíkur. Ekki hefur enn tek-
izt að uppræta lús á nemendum
barna- og unglingaskólans. Var nú
kona send heim á heimilin, þar sem
nit eða lús liafði fundizt i börnunum,
og borinn spiritus penticidi í allt
heimilisfólkið. Hafin var bygging sex
ibúðarhúsa með alls átta íbúðum. Ráð-
inn var hundahreinsunarmaður og
allir hundar í byggðarlaginu hreins-
aðir að lokinni haustslátrun.
Hvammstanya. Húsakynni fara stöð-
ugt batnandi, stöðugar nýbyggingar
íbúðarliúsa víkja til hliðar gömlu
hreysunum, sem voru liér mjög áber-
andi til skamms tima, en nú er loksins
flutt úr 2 siðustu torfbæjunum, sem í
byggð voru. Fólk gengur yfirleitt vel
um híbýli sín, en eins og gengur og
gerist er þrifnaður misjafn. Um þver-
bak keyrði sóðaskapur á einu heimili,
og varð að leysa það upp um tima,
á meðan nágrannar tóku hús, muni
og fatnað til rækilegrar hreinsunar, og
hefur héraðslæknir siðan gert sér tíð-
förult á þetta heimili til eftirlits og
leiðbeininga. Orsakar þessa sóðafalls
er að leita til ómegðar og sinnuleysis
beggja húsráðenda.
Blönduós. Nokkur hús voru byggð
á Blönduósi og í sveitunum. Eru þau
yfirlcitt vönduð.
Höfða. Má teljast sæmilegt og fer
stöðugt batnandi með bættum húsa-
kosti.
Ólafsfj. 5 ný einbýlishús fullgerð og
tekin i notkun. Utanhússþrifnaði á-
bótavant, einkum kringum höfnina.
Bærinn annast ekki sorphreinsun, og
verða því ibúarnir sjálfir að losa sig
við allt sorp, og á að losa það í sjóinn
vestan hafnargarðs. Vill þá oft lienda,
að sorpið lendir á kanti hafnargarðs-
ins eða í fjöruna, og er að þessu hinn
mesti sóðaskapur.
Akureyrar. A árinu hefur verið unn-
ið að byggingarmálum sem hér segir:
íbúðarhús fullgerð á árinu voru 39.
íbúðarhús komin undir þak, en ekki
fullgerð, 55, en auk þess var byrjað
á byggingu 30 nýrra íbúðarhúsa. Lok-
ið var við breytingar og viðauka á 27
eldri húsum. Þrifnaður og umgengni
fólks utanliúss er sæmilegur og senni-
lega betri hér en annars staðar á land-
inu, en gæti þó verið miklu betri, ef
til þess væri nægilega almennur vilji
bæjarbúa.
Grenivíkur. Þrifnaður virðist góður.
Húsavíkur. Hreinlæti viðast hvar
gott, en mikið skortir á tilfinningu
fyrir snyrtilegri umgengni utanhúss.
Bætist þar við, að sorptunnulok eru
liér óþekkt fyrirbrigði, og þrátt fyrir
margítrekað umtal við bæjarstjórnina
um þetta, hefur ekkert verið gert til
úrbóta. Stafar af þessu mikill óþrifn-