Árbók íþróttamanna - 01.12.1951, Síða 241
Dagana 19. sept. til 1. okt. voru haustmótin haldin, í I. fl. sigraði
Kári með 2—0, í II. fl. sigraði KA með 3—0, í III. fl. sigraði KA einnig
með 1—0, og í IV. fl. varð jafntefli, 1—1.
A vegum ÍA fóru flokkar til kappleikja til Siglufjarðar, Reykjavíkur,
og Kári sendi knattspyrnuflokk til Vestmannaeyja.
í þríkeppninni (ÍA, Valur, ÍB Hafnarfjarðar) bar ÍA sigur úr býtum
og hlaut Fatagerðarbikarinn í 3. sinn (sjá bls. 229).
Knattspyrnuráðið var skipað þessum mönnum: Magnús Kristjánsson,
form., Guðjón Finnbogason, Jón S. Jónsson, Leifur Asgrimsson, Sveinn
Teitsson og Benedikt Vestmann.
Akureyri
Knattspyrnan á Akureyri var með svipuðu sniði og undanfarin ár.
Fyrri hluta sumars kenndi Hafsteinn Guðmundsson, landsliðsmaður úr
Val í Reykjavík, og varð koma hans nokkur lyftistöng undir knattspymu-
lífið í bænum.
Um miðjan maí fór fram hraðkeppnin, sem Þór vann. Þrjú lið tóku þátt
í henni, Þór, Knattspyrnufélag Akureyrar og Iþróttafélag Menntaskól-
ans. Þór hagnaðist mest á hlutkestinu, því að það sat hjá meðan MA
og KA börðust um annað sætið í úrslitunum. Leiktími var 2x20 mín.
og 15 mín. hlé milli leikja, og er kom fram í úrslitaleikinn, var lið KA
bersýnilega farið að þreytast. Leikimir fóm svo:
MA .... 1 'l
l. KA .... 0
KA .... 3 J
Þór...................2
Akurevrarmótin fóru fram í II. og III. flokkum í maí, en í I. fl. 17.
september. Akureyrarmeistari varð Þór, sem sigraði KA, 3—1. í II. fl.
sigraði KA með 2—1, og í III. fl. sigraði Þór, 2—0.
Vormót (I. fl.) fór fram 29. maí, og bar Þór sigur úr býtum, 2—1.
I byrjun júlí fór III. fl. Þórs til Siglufjarðar og lék þar 2 leiki. Fvrri
leikinn á Siglufirði unnu heimamenn, 6—0, og þeim síðari lyktaði með
jafntefli, 0—0. Á heimleiðinni var komið við á Sauðárkróki og leikið þar
við Tindastól, sem tefldi fram blönduðu liði úr II. og III. fl. Sigruðu
beimamenn með 7-0.
239