Árbók íþróttamanna - 01.12.1951, Síða 256
18. júní, og sigruðu Siglfirðingar með 2—0. Leikið er um bikar, sem
KS hefur gefið, og haia Ólafsfirðingar unnið tvisvar og Siglfirðingar
tvisvar. Næsta sumar verður leikið í Ólafsfirði, og verður það lokabar-
áttan um bikarinn.
Sameining sendi síðan viku síðar 1. flokk til Siglufjarðar og sigraði
KS með 6—2, en sama dag, 25. júní, heimsótti 3. flokkur Þórs á Akureyri
KS. Sigraði KS í fyrri leiknum (6—0), en síðari leiknum lyktaði með
jafntefli (0—0).
1. flokkur félagsins flaug 1. júlí til Isafjarðar til að leika við félögin þar
(sjá ísafjörður bis. 244—245).
I lok júlí fór 3. flokkur félagsins suður til Reykjavíkur til að taka
þátt í landsmóti 3. flokks (sjá bls. 228). Almenna óánægju vakti það með
drengjunum, að útsláttarfyrirkomulagið skyldi notað, en þegar flokk-
urinn féll úr mótinu eftir 1. leik, fékk hann aukaleik gegn Val, og skildu
liðin jöfn (1—1). A heimleið kom hann við á Akureyri og lék þar gegn
úrvali úr 3. fl. Þórs og KA. Sigraði KS með 2—0.
Um miðjan ágúst kom 3. fl. Fram í Reykjavík og lék 2 leiki, vann
flokkurinn fyrri leikinn með 2—1, en þeim síðari lyktaði með jafntefli
(1T1).
Iþróttabandalag Akraness kom í heimsókn 26. ágúst með 2 flokka
knattspyrnumanna, 3. fl. og meistaraflokk, og léku þeir við 3. og 1. fl.
heimamanna. Ráru Akurnesingar sigur úr býturn í báðum leikjum, unnu
8. flokks leikinn með 2—1, en hinn með 5—1. I síðari leiknum sýndu gest-
irnir mik.la yfirburði, en það var sarna liðið og veitti sterkustu meistara-
flokksliðum Reykjavíkur harða keppni á Islandsmótinu.
Eins og undanfarin ár sendi félagið flokk á Norðurlandsmótið, sem
að þessu sinni fór fram á Akureyri í lok september. Með því að Siglfirð-
ingar voru handhafar bikarsins og höfðu ennfremur unnið hann tvisvar,
var nokkur undirbúningur undir mótið, en svo fór þó, að Þór sigraði
báða andstæðinga sína (KS og KA) og vann Þórisbikarinn til fullrar
eignar. KS tapaði báðum leikjum sínum, fvrir Þór 1—0 og KA 2—0. (Sjá
Akureyri bls. 241).
Yfirlit:
L U J T Mrk Mrk.hlutf. Árangur
KS (3. fl.) .... 9 3 3 3 15-8 1.8500 50.0 *
KS (1. fl.) .... 6 2 1 3 12-11 1.0909 41.666 %
Samtals ......... 15 5 4 6 27-19 1.4210 46.666 %
254